Síraksbók 18Krans-útgáfa

Síraksbók 18

Sá, sem lifir að eilífu, skapaði alla hluti í senn. Guð einn mun réttlættur verða, og hann er ósigrandi konungur að eilífu.

Hver megnar að kunngjöra verk hans?

Því að hver mun rannsaka dýrlega gjörð hans?

Og hver mun kunngjöra mátt tignar hans? Eða hver mun megna að lýsa miskunn hans?

Engu má burt taka né við bæta, og eigi er unnt að finna út hin dýrlegu verk Guðs.

Þegar maðurinn hefur lokið, þá mun hann byrja; og þegar hann hættir, mun hann ráðþrota verða.

Hvað er maðurinn, og hver er náð hans? Og hvað er hans góða, eða hvað er hans illa?

Tala daga mannanna er í mesta lagi hundrað ár; þeir eru metnir sem dropi af sjávarvatni og sem sandkorn, svo eru fá ár í samanburði við eilífðina.

Fyrir því er Guð þolinmóður við þá og úthellir miskunn sinni yfir þá.

Hann hefur séð ofdirfsku hjarta þeirra, að hún er ill, og þekkt endalok þeirra, að þau eru vond.

Fyrir því hefur hann fyllt upp miskunn sína þeim í hag og sýnt þeim veg réttlætisins.

Meðaumkun mannsins nær til náunga hans, en miskunn Guðs nær yfir alt hold.

Hann miskunnar og fræðir og agar sem hirðir hjörð sína.

Hann miskunnar þeim, sem tekur við aga miskunnarinnar og flýtir sér að dómum hans.

Sonur minn, kvarta eigi í velgjörðum þínum, og þegar þú gefur eitthvað, bæt eigi við hryggð með illu orði.

Sefar eigi döggin hitann? Svo er og gott orð betra en gjöfin.

Sjá, er eigi orðið betra en gjöf? En hvort tveggja er hjá réttlættum manni.

Heimskingi mun beisklega ávíta, og gjöf illa upp alins manns eyðir augunum.

Fyrir dóminn bú þér réttlæti, og lær áður en þú talar.

Fyrir sjúkdóm tak lyf, og fyrir dóminn rannsaka sjálfan þig, og þú munt miskunn finna frammi fyrir Guði.

Lægðu þig, áður en þú verður sjúkur, og á sjúkdómstímanum sýn breytni þína.

Lát ekkert hindra þig frá að biðja ávallt, og óttast eigi að réttlætast alt til dauða, því að umbun Guðs varir að eilífu.

Bú sál þína fyrir bænina, og ver eigi sem maður, sem freistar Guðs.

Minnstu reiðinnar, sem á hinum efsta degi mun verða, og tíma endurgjaldsins, þegar hann snýr burt ásjónu sinni.

Minnstu fátæktar á tíma gnægðanna og nauðsynja fátæktarinnar á degi auðæfanna.

Frá morgni til kvölds mun tíminn breytast, og alt þetta er skjótt í augum Guðs.

Vitur maður mun í öllu óttast, og á dögum syndanna mun hann varast leti.

Sérhver skilningsmaður þekkir speki og mun lofa þann, sem hana finnur.

Þeir, sem góðan skilning höfðu í orðum, hafa og sjálfir viturlega breytt og skilið sannleika og réttlæti og úthellt orðskviðum og dómum.

Gakk eigi eftir girndum þínum, heldur snú þér frá eigin vilja þínum.

Ef þú gefur sál þinni girndir hennar, mun hún gjöra þig að fögnuði óvinum þínum.

Haf enga unun af svallsamkomum, hversu litlar sem þær eru, því að deilur þeirra eru sífelldar.

Gjör þig eigi fátækan með því að taka lán til að leggja til veislna, þegar þú átt ekkert í pyngju þinni, því að þá munt þú verða óvinur þíns eigin lífs.