Síðari Samúelsbók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 9

Og Davíð sagði: Er nú nokkur maður eftir orðinn af húsi Sáls? Honum vil eg miskunn auðsýna fyrir sakir Jónatans.

En af húsi Sáls var til maður, er Zíba hét. Hann var kallaður á fund Davíðs. Og konungur sagði við hann: Ert þú Zíba? Og hann svaraði: Þinn þjónn!

Þá mælti konungur: Er nokkur eftir af húsi Sáls, að eg megi auðsýna honum miskunn Guðs? Og Zíba sagði við konung: Enn er á lífi sonur Jónatans og er lami á báðum fótum.

Þá sagði konungur við hann: Hvar er hann? Og Zíba sagði við konung: Hann er í húsi Makírs Ammíelssonar í Lódebar.

Þá sendi Davíð konungur og lét sækja hann í hús Makírs Ammíelssonar í Lódebar.

Og Mefíbóset Jónatansson, Sálssonar, gekk fyrir Davíð, féll fram á ásjónu sína og laut honum. Og Davíð sagði: Mefíbóset! Og hann svaraði: Hér er þjónn þinn.

Þá mælti Davíð til hans: Ver þú óhræddur, því að eg vil auðsýna þér miskunn fyrir sakir Jónatans, föður þíns, og fá þér aftur allar jarðeignir Sáls forföður þíns, og þú skalt jafnan eta við mitt borð.

Þá laut hinn og mælti: Hvað er þjónn þinn þess, að þú skiftir þér af dauðum hundi, eins og mér?

Síðan kallaði konungur á Zíba, þjón Sáls, og mælti til hans: Alt, sem Sál átti, og alt, sem hús hans átti, gef eg syni herra þíns.

Skalt þú nú yrkja landið fyrir hann, ásamt sonum þínum og þrælum, og hirða af því, svo að sonur herra þíns hafi fæðu og megi eta. En Mefíbóset, sonur herra þíns, skal jafnan eta við mitt borð. Og Zíba átti fimtán sonu og tuttugu þræla.

Og Zíba sagði við konung: Þjónn þinn mun gjöra að öllu svo sem minn herra konungurinn hefir boðið þjóni sínum. Og Mefíbóset át við borð Davíðs, svo sem væri hann einn konungssona.

En Mefibóset átti ungan son, sem Míka hét; og allir, sem bjuggu í húsi Zíba, voru þjónar Mefíbósets.

En Mefíbóset bjó í Jerúsalem, því að hann át jafnan við borð konungs; en hann var haltur á báðum fótum.