Gamla testamentiðSaga
Þetta eru síðustu orð Davíðs: il; Svo mælti Davíð Ísaíson, svo mælti maðurinn, er hátt var settur, hinn smurði Jakobs Guðs, ljúflingur Ísraels ljóða.
Andi Drottinn talaði í mér og hans orð er á minni tungu,
Ísraels Guð talaði, bjarg Ísraels mælti við mig: Sá sem ríkir yfir mönnum með réttvísi, sá sem ríkir í ótta Guðs,
hann er eins og dagsbirtan, þegar sólin rennur upp, á heiðríkju-morgni, þegar grasið sprettur í glaða-sólskini eftir regn.
Já, er ekki hús mitt svo fyrir Guði? Því að hann hefir gjört við mig eilífan sáttmála, ákveðinn í öllum greinum og áreiðanlegan. Já, alt sem verður mér til heilla og gleði, skyldi hann ekki veita því vöxt?
En varmennin — þau eru öll eins og þyrnar, sem út er kastað, því að enginn tekur á þeim með hendinni.
Hver, sem rekst á þau, vopnast járni og spjótskafti, og í eldi munu þau brend verða bl kaldra kola. Kappar Davíðs og afreksverk þeirra.
Þetta eru nöfnin á köppum Davíðs: Ísbaal Hakmóníti, höfðingi þeirra þriggja. Hann veifaði spjóti sínu yfir átta hundruð vegnum í einu.
Honum næstur er, meðal kappanna þriggja, Eleasar Dódíson, Ahóhiti. Hann var með Davíð í Pas-Dammím, en Filistar höfðu safnast þar saman til orustu. En er Ísraelsmenn hörfuðu undan,
stóð hann fastur fyrir og barði á Filistum, unz hann varð þreyttur í hendinni, og hönd hans var krept um sverðið, og Drottins veitti mikinn sigur á þeim degi. Og liðið sneri aftur með honum aðeins til rána.
Næstur honum er Samma Ageson, Hararíti. Og Filistar söfnuðust saman og fóru til Lekí, en þar var akurspilda alsprottin flatbaunum. En er fólkið flýði fyrir Filistum,
nam hann staðar í spildunni miðri, náði henni og vann sigur á Filistum; veitti Drottinn þannig mikinn sigur.
Einu sinni fóru þrír af höfðingjunum þrjátíu og komu til Davíðs í hamrinum, í Adúllam-víginu, en flokkur af Filistum lá í herbúðum Í Refaímdal.
Þá var Davíð í víginu, en varðsveit Filista var þá í Betlehem.
Þá þyrsti Davíð og hann sagði: Hver vill sækja mér vatn Í brunninn í Betlehem, sem er þar við hliðið?
Þá brutust kapparnir þrír gegnum herbúðir Filista, jusu vatni úr brunninum í Betlehem, sem þar er við hliðið, tóku það og færðu Davíð. En hann vildi ekki drekka það, heldur dreypti því Drottinn til handa
og mælti: Drottinn láti það vera fjarri mér að gjöra slíkt! Blóð þeirra manna, sem stofnuðu lífi sínu í hættu með því að fara …! — og hann vildi ekki drekka það. Þetta gjörðu kapparnir þrír.
Abísaí, bróðir Jóabs, sonur Zerúju, var fyrir þeim þrjátíu. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum og var frægur meðal þeirra þrjátíu.
þrjátíu. Af þeim þrjátíu var hann í heiðri hafður og var foringi Þeirra, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki.
Benaja Jójadason, hraustmenni, frægur fyrir afreksverk sín, var frá Kabzeel. Hann drap báða sonu Aríels frá Móab. Hann sté ofan í brunn og drap þar ljón einn dag, er snjóað hafði.
Hann drap og egipzkan mann tröllaukinn; Egiptinn hafði spjót í hendi, en hann fór á móti honum með staf, reif Spjótið úr hendi Egiptans og drap hann með hans eigin spjóti.
Þetta gjörði Benaja Jójadason; hann var frægur meðal þrjátíu kappanna.
Af þeim þrjátíu var hann í heiðri hafður, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn.
Asahel, bróðir Jóabs, var meðal þeirra þrjátíu; enn fremur Elhanan Dódóson frá Betlehem,
Samma frá Haród, Elíka frá Haród,
Helez frá Pelet, Íra Íkkesson frá Tekóa,
Abíeser frá Anatót, Síbbekaí frá Húsa,
Zalmón frá Ahó, Maharaí frá Netófa,
Heled Baanason frá Netófa, Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamíns ættkvísl,
Benaja frá Píraton, Híddaí frá Nahale-Gaas,
Abíel frá Bet-Araba, Asmavet frá Bahúrím,
Eljahba frá Saalbón, Jasen Gúniti,
Jónatan Sammason frá Harar, Ahíam Sararsson frá Arar,
Elífelet Ahasbaíson frá Maaka, Elíam Akítófelsson frá Gíló,
Hezró frá Karmel, Paaraí Arkiti,
Jígal Natansson frá Zóba, Baní frá Gað,
Zelek Ammóníti, Naharaí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Zerújusonar,
Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír,
Úría Hetíti — til samans þrjátíu og sjö.