Síðari Samúelsbók 22Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 22

Og Davíð flutti Drottinn orð þessara ljóða, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls.

Hann mælti: Drottinn er bjarg mitt og vígi, hann er sá sem hjálpar mér.

Guð minn er hellubjarg mitt, þar sem eg leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín og hæli, frelsari minn; þú frelsar mig frá ofbeldi.

Lofaður sé Drottinn, hrópa eg, og eg frelsast frá óvinum mínum.

Því að brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,

snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.

Í angist minni kallaði eg á Drottin, og til Guðs míns hrópaði eg; í höll sinni heyrði hann raust mína, og óp mitt barst til eyrna honum.

Jörðin bifðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifðust, því að hann var reiður;

reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.

Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.

Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.

Hann gjörði myrkrið í kring um sig að skýli, regnsortann og skýþyknið.

Frá ljómanum fyrir honum flugu hagl og eldglæringar.

Drottinn þrumaði af himni og hinn hæsti lét raust sína gjalla.

Hann skaut örvum sínum og tvístraði þeim, lét eldingarnar leiftra og hræddi þá.

Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar, fyrir ógnum Drottins, fyrir andgustinum úr nösum hans.

Hann seildist niður af hæðum, greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.

Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.

Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð;

hann leiddi mig út á víðlendi, frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér.

Drottinn fer með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna geldur hann mér;

því að eg hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum;

því að allar skipanir hans hefi eg fyrir augum og frá boðorðum hans hefi eg ekki vikið.

Eg var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum;

fyrir því galt Drottni mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans.

Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur,

sagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn.

Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir alla hrokafulla niðurlúta.

Já, þú ert minn lampi, Drottinn, og Guð minn lýsir mér í myrkrinu.

Því að fyrir þína hjálp brýt eg múra, fyrir hjálp Guðs míns stekk eg yfir borgarveggi.

Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er skírt; skjöldur er hann öllum þeim, sem leita hælis hjá honum.

Því að hver er Guð, nema Drottinn, og hver er hellubjarg, utan vor Guð?

Sá Guð, sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan;

sem gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum;

sem æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann.

Og þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.

Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum og öklar mínir riðuðu ekki.

Eg elti óvini mína og náði þeim, og sneri ekki aftur, fyr en eg hafði gjöreytt þeim.

Eg gjöreyddi þeim og molaði þá sundur, svo að þeir risu ekki upp framar og hnigu undir fætur mér.

Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig.

Þú lézt mig sjá bak óvina minna, og fjendum mínum — þeim eyddi eg.

Þeir hrópuðu — en enginn kom til hjálpar, til Drottins — en hann svaraði þeim ekki.

Og eg muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem saur á strætum.

Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja heiðingjanna; lýður, sem eg þekti ekki, þjónar mér;

útlendingar smjaðra fyrir mér, óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér.

Útlendingar dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum.

Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upphafinn sé Guð hjálpræðis míns,

sá Guð, sem veitti mér hefndir og braut þjóðir undir mig;

sem hreif mig úr höndum óvina minna — og yfir mótstöðumenn mína hófst þú mig; frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig.

Fyrir því vil eg vegsama þig, Drottinn, meðal heiðingjanna og lofsyngja þínu nafni;

hann, sem veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu.