Gamla testamentiðSaga
Á dögum Davíðs varð hallæri í þrjú ár samfleytt. Gekk þá Davíð til frétta við Drottin, en Drottinn svaraði: Á Sál og ætt hans hvílir blóðsök, fyrir það að hann drap Gíbeoníta.
Þá lét konungur kalla Gíbeoníta og sagði við þá — en Gíbeonílar heyrðu ekki til Ísraelsmönnum, heldur leifum Amóríta; og þótt Ísraelsmenn hefðu unnið þeim eiða, leitaðist Sál við að drepa þá, af vandlælingasemi vegna Ísraelsmanna og Júda.
Og Davíð sagði við Gíbeoníta: Hvað á eg að gjöra fyrir yður, og með hverju á eg að friðþægja, til þess að þér blessið arfleifð Drottins?
Þá sögðu Gíbeonitar við hann: Það er ekki silfur og gull, sem vér sækjumst eftir af Sál og ætt hans, og engan mann viljum vér feigan í Ísrael. Hann svaraði: Hvað segið þér, að eg eigi að gjöra fyrit yður?
Þá sögðu þeir við konung: Maðurinn, sem eyddi oss, og hugði að afmá oss, svo að vér værum ekki lengur til í öllu Ísraels landi, —
af niðjum hans skulu oss fengnir sjö menn, svo að vér megum bera þá út fyrir Drottni í Gíbeon á fjalli Drottins. Konungur sagði: Eg skal fá yður þá.
Konungur þyrmdi þó Mefíbóset, Jónatanssyni, Sálssonar, vegna eiðs þess við Drottin, er þeir höfðu unnið hver öðrum, Davíð og Jónatan, sonur Sáls.
Og konungur tók báða sonu Rizpu Ajasdóttur, er hún hafði fætt Sál, Armóní og Mefíbóset, og fimm sonu Merab, dóttur Sáls, er hún hafði fætt Adríel, Barsillaísyni frá Mehóla,
og fékk þá í hendur Gíbeonítum. Og þeir báru þá út fyrir Drottni á fjallinu, svo að þeir dóu sjö saman, og voru þeir teknir af lífi fyrstu daga uppskerunnar.
En Rizpa Ajasdóttir tók hærusekk og breiddi hann út á klettinum handa sér, frá byrjun uppskerunnar þar til er regn streymdi af himni yfir þá, og eigi leyfði hún fuglum himinsins að setjast að þeim um daga, né dýrum merkurinnar um nætur.
En er Davíð var sagt frá, hvað Rizpa Ajasdóttir, hjákona Sáls, hafði gjört,
fór Davíð og sótti bein Sáls og bein Jónatans sonar hans, til Jabesmanna í Gíleað, en þeir höfðu stolið þeim á torginu í Bet-San, þar sem Filistar höfðu hengt þá upp, daginn sem Filistar drápu Sál á Gilbóa.
Hann kom þaðan með bein Sáls og bein Jónatans sonar hans; var síðan safnað saman beinum hinna útbornu
og þau grafin með beinum Sáls og beinum Jónatans sonar hans í landi Benjamíns í Zela, í gröf Kíss föður hans. Var alt gjört sem konungur bauð, og eftir það líknaði Guð landinu.
Enn áttu Filistar ófrið við Ísrael; fór Davíð þá með menn sína til þess að berjast við Filista.
Og er þeir lágu í herbúðum í Gób, reis upp Dód, einn af niðjum Refaíta, og vó spjót hans þrjú hundruð sikla eirs; var hann gyrtur nýju sverði og hugði að drepa Davíð.
Þá kom Abísaí Zerújuson honum til hjálpar og hjó Filistann banahögg. Þá sárbændu menn Davíðs hann og sögðu: Þú mátt eigi framar með oss fara í hernað, svo að þú slökkvir eigi lampa Ísraels.
Seinna tókst enn orusta hjá Gób við Filista. Þá drap Sibbekaí Húsatíti Saf, sem og var einn af niðjum Refaíta.
Og enn tókst orusta hjá Gób við Filista; þá drap Elhanan Jaírsson frá Betlehem Golíat frá Gat; var spjótskaft hans sem vefjarrifur.
Og er enn tókst orusta hjá Gat, var þar tröllaukinn maður, er hafði sex fingur á hvorri hendi og sex tær á hvorum fæti, tuttugu og fjögur að tölu; var hann og kominn af Refaítum.
Hann smánaði Stael, en Jónatan sonur Símei, bróðir Davíðs, drap hann.
Þessir fjórir voru komnir af Refaítum í Gat, og féllu þeir fyrir Davíð og mönnum hans.