Síðari Samúelsbók 24Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 24

Og reiði Drottins upptendraðist enn gegn Ísrael; egndi hann þá Davíð upp í móti þeim með því að segja: Far þú og tel Ísrael og Júda.

Þá sagði konungur við Jóab og, hershöfðingjana, sem með hum voru: Far þú um allar ættkvíslir Ísraels frá Dan til Beerseba teljið fólkið til þess að eg fái að vita, hve margt fólkið er.

Jóab svaraði konungi: Drottinn Guð þinn margfaldi lýðinn — hversu margir þeir nú kunna að vera — hundrað sinnum og láti minn herra konunginn lifa það; en hvers vegna vill minn herra konungurinn gjöra þetta?

En Jóab og hershöfðingjarnir máttu eigi gjöra annað en það, sem konungur bauð. Gekk þá Jóab og hershöfðingjarnir burt frá konungi, til þess að taka manntal í Ísrael.

Þeir fóru yfir Jórdan og byrjuðu á Aróer og borginni, sem er í dalnum í áttina til Gað og Jaeser.

Síðan komu þeir til Gíleað, og til lands Hetíta, í nánd við Kades. Þá komu þeir til Dan, og frá Dan beygðu þeir við í áttina til Zidon.

Því næst komu þeir til Týruskastala og il allra borga va Rr ta; fóru síðan til suðurlandsins í Júda, il Beerseba.

En er þeir höfðu farið um land alt, komu þeir eftir níu mánuði og tuttugu daga til Jerúsalem.

Og Jóab sagði konungi töluna, sem komið hafði út við manntalið; í Ísrael voru átta hundruð þúsundir vopnfærra manna vopnbúinna, en í Júda fimm hundruð þúsundir manns.

En samvizkan sló Davíð, er hann hafði látið telja fólkið. Þá sagði Davíð við Drottin: Mjög hefi eg syndgað með því, sem eg hefi gjört; en Drottinn, tak nú burt misgjörð þjóns þíns, því að mjög óviturlega hefir mér tiltekist.

En er Davíð reis af kom orð Við Da. Gaðs spámanns, sjáanda Davíðs, svolátandi:

Far þú og seg og A Svo segir Drottinn: Þrjá kosti sel eg þér, kjós einn af þeim, um frá. eg svo við þig gjöra.

Þá gekk Gað til Davíðs, sagði hontrá þessu og mælti til hans: Hvað kýs þú, að hungur komi í þrjú ár yfir land þitt, eða að þú verðir að flýja í þrjá mánuði fyrir óvinum þínum, og sverðið elli þig, eða drepsótt geisi þrjá daga í landi þínu? Hugsaðu þig nú um, og sjá til, hverju eg á að svara þeim, sem sendi mig.

Þá sagði Davíð við Gað: Eg er í miklum nauðum.staddur — falla skulum vér í hendur Drottins, því að mikil er miskunn hans, en í manna hendur vil eg ekki falla.

Davíð kaus þá drepsóttina; en hveitiuppskeran stóð yfir, þegar sóttin byrjaði, og af lýðnum frá Dan til Beerseba dóu sjötíu þúsundir manns.

En er engillinn rétti út hönd sína gegn Jerúsalem, til þess að eyða hana, þá iðraði Drottinn hins illa, og hann sagði við engilinn, sem eyddi fólkinu: Nóg er að gjört! drag nú að þér höndina, — en engill Drottins var þá hjá þreskivelli Aravna Jebúsíta.

En er Davíð sá, hversu engillinn drap niður fólkið, þá sagði hann við Drottin: Sjá, eg hefi syndgað og eg hefi misgjört, en þetta eru sauðirnir — hvað hafa þeir gjört? Lát hönd þína leggjast á mig og ættmenn mína.

Þann dag kom Gað til Davíðs og mælti við hann: Far þú og reis Drottinn altari á þreskivelli Aravna Jebúsíta.

Og Davíð fór eftir boði Gaðs, eins og Drottinn hafði skipað.

Og er Aravna leit upp og sá konung og menn hans fara til sín, þá gekk hann í móti þeim og laut á ásjónu sína til jarðar fyrir konungi.

Og Aravna mælti: Hví kemur minn herra konungurinn til þjóns síns? Davíð svaraði: Til þess að kaupa af þér þreskivöllinn, svo að eg geti reist Drottni altari og plágunni megi létta af lýðnum.

Aravna svaraði Davíð: Taki minn herra konungurinn það, sem honum þóknast, og fórni: sjá, hér eru nautin til brennifórnar og þreskisleðarnir og aktýgin af nautunum til eldiviðar —

alt þetta, konungur! gefur Aravna konunginum. Og Aravna mælti við konung: Drottinn, Guð þinn, sé þér náðugur!

En konungur sagði við Arayna: Eigi svo, en kaupa vil eg það verði af þér, því að ekki vil eg færa Drottni, Guði mínum, það í brennifórnir, er eg hefi kauplaust þegið. Síðan keypti Davíð þreskivöllinn og nautin fyrir fimtíu sikla silfurs.

Og Davíð reisti Drottni þar altari, og fórnaði brennifórnum og heillafórnum. Og Drottinn líknaði landinu, og létti þá plágunni af Ísrael. Fyrri bók konimg’aniia.