Síðari Samúelsbók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 11

Svo bar til árið eftir, um það leyti sem konungar eru vanir að fara í hernað, að Davíð sendi Jóab af stað með menn sína og allan Ísrael; og þeir herjuðu á Ammóníta og settust um Rabba; en Davíð sat heima í Jerúsalem.

Nú vildi svo til eitt kveld, að Davíð reis upp úr hvílu sinni og fór að ganga um gólf uppi á þaki konungshallarinnar; sá hann þá ofan af þakinu konu vera að lauga sig; en konan var forkunnar fögur.

Þá sendi Davíð og spurðist fyrir um konuna, og honum var sagt: Það er Batseba Elíamsdóttir, kona Úría Hetíta.

Og Davíð sendi menn og lét sækja hana. Og hún kom til hans og hann lagðist með henni, því að hún hafði hreinsað sig af óhreinleika sínum; síðan fór hún aftur heim til sín.

En konan var þunguð orðin; og hún sendi og lét Davíð vita það og mælti: Eg er með barni.

Davíð gjörði þá Jóab boð: Sendu Úría Hetíta til mín. Og Jóab sendi Úría til Davíðs.

En er Úría kom á hans fund, spurði Davíð, hvernig Jóab liði og hvernig honum liði og hvernig hernaðurinn gengi.

Því næst sagði Davíð við Úría: Gakk þú nú heim til þín og lauga fætur þína. Gekk Úría þá burt úr konungshöllinni og var gjöf frá konungi borin á eftir honum.

En Úría lagðist til hvíldar fyrir dyrum konungshallarinnar hjá öðrum þjónum herra síns, en fór ekki heim til sín.

Menn sögðu Davíð frá því og mæltu: Úría er ekki farinn heim til sín. Þá sagði Davíð við Úría: Þú ert kominn úr ferð — hvers vegna fer þú ekki heim til þín?

Þá sagði Úría við Davíð: Örkin og Ísrael og Júda búa í laufskálum og herra minn Jóab og menn herra míns hafast við úti á bersvæði — og þá ætti eg að fara heim til mín, til þess að eta og drekka og hvíla hjá konu minni? Svo sannarlega sem Drottinn lifir og þú lifir, það gjöri eg ekki.

Þá sagði Davíð við Úría: Vertu þá hér líka í dag, en á morgun gef eg þér fararleyfi. Var Úría þann dag í Jerúsalem.

Daginn eftir hafði Davíð hann í boði sínu, og hann át og drakk með honum, og hann gjörði hann drukkinn. En um kveldið gekk hann burt og lagðist til hvíldar hjá þjónum herra síns, en fór ekki heim til sín.

Morguninn eftir skrifaði Davíð Jóab bréf og sendi það með Úría.

Í bréfinu skrifaði hann svo: Setjið Úría fremstan í bardagann, þar sem hann er harðastur, og hörfið aftur undan frá honum, svo að hann verði ofurliði borinn og falli.

Jóab sat um borgina og skipaði nú Úría þar til orustu, sem hann vissi að hraustir menn voru fyrir.

Gjörðu borgarmenn síðan úthlaup og börðust við Jóab; féllu þá nokkurir af liðinu, af þjónum Davíðs; þá lét og Úría Hetíti líf sitt.

Þá sendi Jóab og lét segja Davíð, hvernig farið hefði í orustunni,

og hann lagði svo fyrir sendimanninn: Þegar þú hefir sagt konungi sem greinilegast frá bardaganum,

og konungur þá verður reiður og segir við þig: Hví fóruð þér svo nærri borginni í orustu? vissuð þér ekki að þeir mundu skjóta á yður ofan af borgarveggnum?

Hver feldi Abímelek Jerúbbesetsson? Kastaði ekki kona kvarnarsteini á hann ofan af borgarveggnum, svo að hann dó í Tebez? Hví fóruð þér svo nærri borgarveggnum? — þá skalt þú segja: Þjónn þinn, Úría Hetíti, lét og lífið.

Síðan fór sendimaðurinn og kom og flutti Davíð alt, sem Jóab hafði fyrir hann lagt, hvernig farið hefði í orustunni; varð þá Davíð reiður Jóab og sagði við sendimanninn: Hví fóruð þér svo nærri borginni í orustu? vissuð þér ekki að það mundi verða kastað á yður ofan af borgarveggnum? Hver feldi Abímelek Jerúbbesetsson? Kastaði ekki kona kvarnarsteini á hann ofan af borgarveggnum, svo að hann dó í Tebez? Hví fóruð þér svo nærri borgarveggnum?

Þá sagði sendimaðurinn við Davíð: Mennirnir voru oss yfirsterkari og voru komnir í móti oss út á bersvæði; fyrir því urðum vér að sækja að þeim alt að borgarhliðinu.

En þá skutu skotmennirnir á þjóna þína niður af borgarveggnum, og féllu þá nokkurir af mönnum konungs og þjónn þinn, Úría Hetíti, lét og lífið.

Þá sagði Davíð við sendimanninn: Svo skalt þú segja Jóab: Láttu þetta ekki á þig fá, því að sverðið verður ýmist þessum eða hinum að bana; sæk þú vasklega að borginni og brjót hana — og teldu þannig hug í hann.

En er kona Úría frétti, að maður hennar Úría var fallinn, harmaði hún bónda sinn.

En þegar sorgardagarnir voru liðnir, sendi Davíð og tók hana heim til sín, og hún varð kona hans og fæddi honum son. En Drottinn mislíkaði það, sem Davíð hafði gjört.