Síðari Kroníkubók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 8

En að tuttugu árum liðnum, þá er Salómó hafði bygt musteri Drottins og höll sína —

en borgirnar, er Húram hafði látið af hendi við Salómó, þær víggirti Salómó og lét Ísraelsmenn setjast þar að —,

þá hélt Salómó til Hamat hjá Zóba og náði henni á sitt vald.

Og hann víggirti Tadmor í eyðimörkinni og allar vistaborgirnar, þær er hann bygði í Hamat.

Þá víggirti hann og Efri-Bethóron og Neðri-Bethóron og gjörði að köstulum með múrum, hliðum og slagbröndum,

enn fremur Baalat og allar vistaborgirnar, er Salómó átti, og allar vagnliðsborgirnar og riddaraborgirnar og alt, sem Salómó fýsti að byggja í Jerúsalem, á Líbanon og í öllu ríki sínu.

Alt það fólk, sem eftir var af Hetítum, Amórítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, er eigi heyrðu til Ísraelsmönnum,

niðjar þeirra, sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn eigi höfðu útrýmt — á þá lagði Salómó skylduvinnu, og er svo enn í dag.

En af Ísraelsmönnum gjörði Salómó enga að þrælum til þess að vinna að fyrirtækjum sínum, en þeir voru hermenn, foringjar fyrir vagnköppum hans og foringjar fyrir vagnliði hans og riddaraliði.

Og þessir voru æðstir fógeta Salómós konungs: tvö hundruð og fimtíu; þeir höfðu eftirlit með mönnum.

Og dóttur Faraós færði Salómó frá Davíðsborg í hús það, er hann hafði bygt handa henni, því að hann sagði: Eigi skal eg láta konu búa í höll Davíðs Ísraels-konungs, því að höllin er helgidómur, af því að örk Drottins er komin inn þangað.

Þá færði Salómó Drottni brennifórnir á altari Drottins, því er hann hafði reist fyrir framan forsalinn,

svo að hann færði fórnir eins og við átti á degi hverjum samkvæmt skipunum Móse, á hvíldardögunum, tunglkomudögunum og löghátíðunum, þrisvar á ári — á hátíð hinna ósýrðu brauða, á viknahátíðinni og á laufskálahátíðinni.

Og eftir fyrirmælum Davíðs föður síns setti hann prestaflokkana til þjónustu þeirra og Levítana til starfs þeirra, að syngja lofsöngva og vera prestunum til aðstoðar, svo sem við átti á degi hverjum, og hliðverðina setti hann við sérhvert hlið, eftir flokkaskipun þeirra, því að svo hafði guðsmaðurinn Davíð um boðið.

Var hvergi brugðið af skipun konungs um prestana og Levítana og féhirzlurnar.

Var þannig lokið við öll störf Salómós, frá þeim degi, er grundvöllurinn var lagður að musteri Drottins, og þangað til Salómó lauk við musteri Drottins.

Þá fór Salómó til Ezjón-Geber og til Elót á strönd hafsins í Edómlandi.

En Húram sendi honum með mönnum sínum skip og menn, vana sjóferðum. Og þeir komust til Ófír ásamt mönnum Salómós og sóttu þangað fjögur hundruð og fimtíu talentur gulls og færðu Salómó konungi.