Síðari Kroníkubók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 7

En er Salómó hafði lokið bæn sinni, kom eldur af himni og eyddi brennifórninni og sláturfórninni, og dýrð Drottins fylti húsið.

Og prestarnir máttu eigi inn ganga í musteri Drottins, því að dýrð Drottins fylti hús Drottins,

Og er allir Ísraelsmenn sáu að eldinum laust niður, og að dýrð Drottins steig niður yfir húsið, þá beygðu þeir ásjónur sínar til jarðar, niður á steingólfið, lutu og lofuðu Drottin, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

En konungur og allur lýðurinn fórnaði sláturfórnum frammi fyrir Drottni.

Og Salómó konungur fórnaði tuttugu og tvö þúsund nautum og hundrað og tuttugu þúsund sauðum í heillafórn. Þannig vígði konungur og allur lýðurinn musteri Guðs.

En prestarnir stóðu á sínum stað og sömuleiðis Levítarnir með hljóðfæri Drottins, þau er Davíð konungur hafði gjöra látið til þess að þakka Drottni, því að miskunn hans varir að eilífu, og þeir léku lofsöng Davíðs, en andspænis þeim þeyttu prestarnir lúðra, en allur Ísrael stóð.

Og Salómó vígði miðhluta forgarðsins, er liggur frammi fyrir musteri Drottins, því að þar fórnaði hann brennifórnum og hinum feitu stykkjum heillafórnanna. Því að eiraltarið, það er Salómó hafði gjöra látið, gat eigi tekið brennifórnirnar og matfórnirnar og feitu stykkin.

Þannig hélt Salómó þá hátíðina í sjö daga og allur Ísrael með honum, — afarmikill söfnuður, þaðan frá, er leið liggur til Hamat, alt til Egiptalandsár.

Og áttunda daginn héldu þeir hátíðasamkomu, því að sjö daga voru þeir að vígja altarið og hátíðina héldu þeir í sjö daga.

En á tuttugasta og þriðja degi hins sjöunda mánaðar lét hann lýðinn fara heim til sín, glaðan og í góðu skapi yfir þeim gæðum, sem Drottinn hafði veitt Davíð og Salómó og lýð sínum Ísrael.

Þá er Salómó hafði lokið að byggja musteri Drottins og konungshöllina og hafði fengið farsællega framgengt öllu því, er honum bjó í huga að gjöra í húsi Drottins og í höll sinni,

þá vitraðist Drottinn Salómó á náttarþeli og sagði við hann: Eg hefi heyrt bæn þína og útvalið mér þennan stað að fórnahúsi.

Þegar eg byrgi himininn, svo að eigi nær að rigna, og þegar eg býð engisprettum að rótnaga landið, og Þegar eg læt drepsótt koma meðal lýðs míns,

og lýður minn, sá er við mig er kendur, auðmýkir sig, og þeir biðja og leita auglitis míns og snúa sér frá sínum vondu vegum, þá vil eg heyra þá frá himnum, fyrirgefa þeim syndir þeirra og græða upp land þeirra.

Skulu augu mín vera opin og eyru mín gaumgæfin gagnvart bæn þeirri, er fram er borin á þessum stað.

Og nú hefi eg útvalið og helgað þetta hús, til þess að nafn mitt megi búa þar að eilífu, og skulu augu mín og hjarta vera þar alla daga.

Og ef þú gengur fyrir augliti mínu, svo sem gjörði Davíð faðir þinn, með því að fara með öllu svo sem eg hefi þér um boðið, og þú heldur ákvæði mín og lög,

þá mun eg staðfesta hásæti konungdóms þíns, eins og eg hátíðlega hét Davíð föður þínum, þá er eg sagði: Eigi skal þig vanta eftirmann til þess að ríkja yfir Ísrael.

En ef þér snúið baki við mér og fyrirlátið ákvæði mín og skipanir, er eg hefi fyrir yður lagt, en farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim,

þá mun eg útrýma þeim úr landi mínu, því er eg gaf þeim, og húsi þessu, sem eg hefi helgað nafni mínu, mun eg burt snara frá augliti mínu og gjöra það að orðskvið og spotti meðal allra þjóða.

Og þetta hús, svo háreist sem það er — hverjum sem gengur fram hjá því, mun blöskra. Og ef hann þá spyr: Hvers vegna hefir Drottinn leikið svo hart þetta land og þetta hús?

munu menn svara: Af því að þeir yfirgáfu Drottin, Guð feðra sinna, er leiddi þá út af Egiptalandi, og héldu sér að öðrum guðum, féllu fram fyrir Þeim og þjónuðu þeim, fyrir því hefir hann leitt yfir þá alla þessa ógæfu.