Síðari Kroníkubók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 9

En er drotningin í Saba spurði orðstír Salómós, kom hún til Jerúsalem með mjög miklu föruneyti og með úlfalda, klyfjaða kryddjurtum og afarmiklu gulli og gimsteinum, til þess að reyna Salómó með gátum. Og er hún kom til Salómós, bar hún upp fyrir honum alt, sem henni bjó í brjósti.

En Salómó svaraði öllum spurningum hennar; var enginn hlutur hulinn Salómó, er hann gæti eigi leyst úr fyrir hana.

Og er drotningin frá Saba sá speki Salómós og húsið, sem hann hafði reisa látið,

matinn á borði hans, bústaði þjóna hans og frammistöðu skutilsveina hans og klæði þeirra, byrlara hans og klæði þeirra og brennifórn hans, þá er hann fram bar í húsi Drottins, þá varð hún frá sér numin

og sagði við konung: Satt var það, er eg heyrði í landi mínu um þig og speki þína.

En eg trúði ekki orðum þeirra fyr en eg kom og sá það með eigin augum. Og þó hafði eg ekki frétt helminginn um gnótt speki þinnar; þú ert meiri orðróm þeim, er eg hefi heyrt.

Sælir eru menn þínir og sælir þessir þjónar þínir, sem stöðugt standa frammi fyrir þér og heyra speki þína.

Lofaður sé Drottinn, Guð þinn, sem hafði þóknun á þér, svo að hann setti þig í hásæti sitt sem konung Drottins, Guðs þíns; af því að Guð þinn elskar Ísrael, svo að hann vill láta hann standa að eilífu, gjörði hann þig að konungi yfir þeim, til þess að iðka rétt og réttvísi.

Síðan gaf hún konungi hundrað og tuttugu talentur gulls og afarmikið af kryddjurtum og gimsteina; hefir aldrei síðan verið annað eins af kryddjurtum og drotningin frá Saha gaf Salómó konungi.

Sömuleiðis komu og þjónar Húrams og þjónar Salómós, þeir er gull sóttu til Ófír, með sandelvið og gimsteina.

Og konungur lét gjöra handrið í hús Drottins og í konungshöllina af sandelviðnum, svo og gígjur og hörpur handa söngmönnunum; hafði er áður slíkt sést í Júdalandi,

Og Salómó konungur gaf drotningunni frá Saha alt, er hún girntist og kaus sér, auk þess, er hún hafði fært konungi. Hélt hún síðan heimleiðis og fór í land sitt með föruneyti sínu. Auðæfi Salómós. Heimildir fyrir sögu hans.

Og gullið, sem Salómó fékk á einu ári, var sex hundruð sextíu og sex talentur gulls að þyngd,

auk þess er kom inn frá varningsmönnum og þess er kaupmennirnir komu með; auk þess færðu allir konungar Arabíu og jarlar landsins Salómó gull og silfur.

Og Salómó konungur lét gjöra tvö hundruð skjöldu af slegnu gulli, fóru sex hundruð siklar af slegnu gulli í hvern skjöld,

og þrjú hundruð buklara af slegnu gulli, fóru þrjú hundruð siklar gulls í hvern buklara. Lét konungur leggja þá í Líbanonsskógarhúsið.

Konungur lét og gjöra hásæti mikið af fílabeini og lagði það skírn gulli.

Gengu sex þrep upp að hásætinu og fótskör úr gulli var fest á hásætið. Bríkur voru báðumegin sætisins og stóðu tvö ljón við bríkurnar.

Og tólf ljón stóðu á þrepunum sex, báðumegin. Slík smíð hefir aldrei verið gjörð í nokkurn konungsríki.

Öll voru drykkjarker Salómós konungs af gulli og öll áhöld í Líbanonsskógarhúsinu voru af skíru gulli, ekkert af silfri, því að silfur var einskis metið á dögum Salómós.

Því að konungur hafði skip, er fóru til Tarsis með mönnum Húrams; þriðja hvert ár komu Tarsis-skipin heim, hlaðin gulli og silfri, fílabeini, öpum og páfuglum,

Og Salómó konungur bar af öllum konungum jarðarinnar að auðlegt og vizku.

Og alla konunga jarðarinnar fýsti að sjá Salómó, til þess að heyra vizku hans, sem Guð hafði lagt honum í brjóst.

Komu þeir þá hver með sína gjöf, silfurgripi og gullgripi, klæði, Vopn og kryddjurtir, hesta og múla, ár eftir ár.

Og Salómó átti fjögur þúsund vagneyki og vagna og tólf þúsund riddara; lét hann þá Vera í vagnliðsborgunum og með konungi í Jerúsalem.

Og hann Árotnaði yfir öllum konungum frá Fljótinu alt til Filistalands og til landamæra Egiptalands.

Og konungur gjörði silfur eins algengt í Jerúsalem og grjót, og sedrusvið eins og mórberjatrén, sem vaxa á láglendinu.

Og menn fluttu hesta úr Egiptalandi og úr öllum löndum handa Salómó.

En annað af sögu Salómós er frá upphafi til enda skráð í sögu Natans spámanns og í spádómi Ahía frá Síló og í vitrun Íddós sjáanda um Jeróbóam Nebatsson.

Og Salómó ríkti í Jerúsalem yfir öllum Ísrael í fjörutíu ár.

Og Salómó lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var jarðaður í borg Davíðs föður síns. Og Rehabeam sonur hans tók ríki eftir hann.