Gamla testamentiðSaga
Og Jósafat lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn; hjá feðrum sínum í Davíðsborg. Og Jóram sonur hans tók líki eftir hann. Frá Jóram.
Jóram átti bræður, sonu Jósafats: Asarja, Jehíel, Sakaría, Asarja, Mikael og Sefatja; allir þessir voru synir Jósafats Ísraels-konungs.
Og faðir þeirra hafði gefið þeim miklar gjafir í silfri og gulli og skartgripþal, svo og kastalaborgir í Júda, en konungdóminn fékk hann Jóram í hendur, því að hann var frumgetuingurinn.
En er Jóram hafði náð völdum yfir ríki föður síns og var orðinn fastur í sessi, þá lét hann drepa alla bræður sína og auk þess nokkura af höfðingjum Ísraels með sverði.
Jóram var þrjátíu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og átta ár ríkti hann í Jerúsalem.
Og hann fetaði í fótspor ísraels-konunga, eins og Akabs ætt gjörði, því að hann var kvæntur dóttur Akabs. Þannig gjörði hann það, sem út var í augum Drottins.
En Drottinn vildi eigi afmá ætt Davíðs, sakir sáttmála þess, er hann hafði gjört við Davíð, og samkvæmt því, er hann hafði heitið, að gefa honum og niðjum hans lampa alla daga.
Á hans dögum brutust Edómítar undan yfirráðum Júda og tóku konung yfir sig.
Þá fór Jóram með höfðingjum sínum og öllu vagnliðinu yfir til Zaír, og hann tók sig upp um nóttina. og barði á Edómítum, sem héldu honum í herkví, svo og á foringjum vagnliðsins.
Þannig brutust Edómítar undan yfirráðum Júda og hafa aldrei lotið þeim síðan. Þá brauzt og Líbna um sama leyti undan yfirráðum hans, af því að hann hafði yfirgefið Drottin, Guð feðra sinna.
Einnig hann gjörði hæðir í Júdaborgum, ginti Jerúsalem-búa til skurðgoðadýrkunar og tældi Júda.
Þá kom til hans bréf fra Elía spámanni, er svo hljóðaði: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs forföður þíns: Sakir þess að þú fetaðir eigi í fótspor Jósafals föður þíns og Asa Júda-konungs,
heldur fetaðir í fótspor ísraels-konunga og gintír Júda og Jerúsalem-búa til skurðgoðadjukunar, eins og Akabs ætt ginti menn til skurðgoðadýrkunar, og lézt, auk þessa, drepa bræður þína, ættmenn þína, er betri voru en þú,
þá mun Drottinn ljósta lýð þinn, sonu þína og konur og alla eign þína áfelli miklu.
En sjálfur munt þú taka sjúkleik, iðrakvöl, unz iður þín loks falla út af sjúkdóminum.
Og Drottinn æsti reiði Filista og Araba, þeirra er búa hjá Blálendingum, gegn Jóram,
svo að þeir fóru herför gegn Júda, brutust inn og höfðu burt með sér að herfangi alt fémætt, er var í konungshöllinni, og auk þess sonu hans og konur. Varð enginn eftir af sonum hans nema Jóahas, er var yngstur sona hans.
En ofan á alt þetta laust Drottinn hann með ólæknandi iðrasjúkleik.
Og eftir alllangan tíma, að liðnum nær tveim árum, féllu iður hans út af sjúkdóminum og dó hann eftir miklar þjáningar. En þjóð hans gjörði ekkert bál honum til heiðurs eins og feðrum hans.
Hann var þrjátíu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur og átta ár ríkti hann í Jerúsalem. Fór hann svo, að enginn óskaði hans aftur, og var hann jarðaður í Davíðsborg, þó eigi í konungagröfunum. Frá Ahasja.