Gamla testamentiðSaga
Ó Síðan tóku Jerúsalem-búar Ahasja, yngsta son hans, til konungs eftir hann, því að ræningjaflokkurinn, er komið hafði til herbúðanna ásamt Aröbunum, hafði drepið alla þá, er eldri voru, og þannig tók Ahasja ríki, sonur Jórams Júda-konungs.
Ahasja var fjörutíu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og eitt ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Atalía, sonardóttir Omri.
Hann fetaði líka í fótspor Akabs ættar, því að móðir hans fékk hann til óguðlegs athæfis með ráðum sínum.
Og hann gjörði það sem út var í augum Drottins, eins og ættmenn Ákabs, því að þeir voru ráðgjafar hans eftir dauða föður hans, sjálfum honum til tjóns.
Aðþeirra ráðum var það og, að hann fór herför með Jóram Ákabssyni fsraels-konungi í móti Hasael Sýrlands-konungi, til Hamól í Gíleað, en Sýrlendingar særðu Jóram.
Þá sneri hann aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er hann hafði fengið við Rama, þá er hann barðist við Hasael Sýrlands-konung. En Ahasja Jóramsson Júda-konungur fór ofan til Jesreel til þess að vitja um Jóram Akabsson, af því að hann lá sjúkur.
En það var að Guðs tilstilli, til hrakfara fyrir Ahasja, að hann fór til Jórams. Þegar hann var þangað kominn, fór hann með Jóram á móti Jehú Nimsísyni, er Drottinn hafði smyrja látið til þess að afmá Ákabs ætt.
SOg er Jehú háði dóm yfir Akabs ætt, hitti hann hershöfðingja Júdamanna og bræðrasonu Ahasja, er þjónuðu Ahasja, og lét drepa þá.
Síðan Lét hann leita Ahasja og var hann handtekinn, en hann hafði falið sig í Samaríu. Var hann færður Jehú og drepinn. En síðan jörðuðu menn hann, því að þeir sögðu: Hann er sonur Jósafats, þess er leitaði Drottins af öllu hjarta sínu. En enginn var sá af ætt Ahasja, er fær væri um að taka við konungdómi. Frá Atalíu.
En er Atalía móðir Ahasja sá að sonur hennar var dauður, fór hún til og lét drepa alla konungsætt Júda.
Þá tók Jósabat, dóttir Jórams konungs, Jóas Ahasjason, og tók hann á laun úr hóp konungssonanna, er deyða átti, og fól hann og töstru hans í svefnherberginu. Þannig fól Jósabat, dóttir Jórams konungs, kona Jójada prests, hann — því að hún var systir Ahasja fyrir Atalíu, svo að hún lét eigi drepa hann.
Og hann var hjá þeim á laun sex ár í musteri Guðs, meðan Atalía ríkti yfir landinu.