Gamla testamentiðSaga
Og Jósafat sonur hans tók ríki eftir hann og efldi sig gegn Ísrael.
Hann setti herlið í allar víggirtar borgir í Júda og lét fógeta í Júdaland og Efraímborgir, þær er Asa faðir hans hafði unnið.
Og Drottinn var með Jósafat, því að hann gekk á hinum fyrri vegum Davíðs forföður síns og leitaði ekki Baalanna,
heldur leitaði Guðs föður síns og fór eftir skipunum hans og breytti ekki sem Ísrael.
Þess vegna staðfesti Drottinn konungdóminn í hendi hans, svo að allur Júda færði Jósafat gjafir, svo að honum hlotnaðist afarmikil auðlegð og sæmd.
Og með því að honum óx hugur á vegum Drottins, þá afnumdi hann og hæðirnar og asérurnar úr Júda.
En á þriðja ríkisári sínu sendi hann höfðingja sína Benhail, Óbadía, Sakaría, Netaneel og Míkaja til þess að kenna í Júdaborgum
og með þeim Levítana Semaja, Netanja, Sebadja, Asahel, Semíramót, Jónatan, Adónía, Tobía og Tob-Adónía Levíta, og ásamt þeim prestana Elísama og Jóram.
Þeir kendu í Júda og höfðu með sér lögbók Drottins, og fóru um allar borgir í Júda og kendu lýðnum.
Og ótti við Drottin kom yfir öll heiðnu ríkin, er voru umhverfis Júda, svo að þau lögðu eigi í ófrið við Jósafat.
Og nokkurir af Filistum færðu Jósafat gjafir og silfur í skatt; einnig Arabar færðu honum fénað: sjö þúsund og sjö hundruð hrúta og sjö þúsund og sjö hundruð geithafra.
Og þannig varð Jósafat æ voldugri, svo að yfir tók, og hann reisti hallir og vistaborgir í Júda;
hafði hann afarmikinn vistaforða í Júdaborgum, og hermenn hafði hann í Jerúsalem, hina mestu kappa.
Og þetta er tala þeirra eftir ættum þeirra: Af Júda voru þúsundhöfðingjar: Adna höfuðsmaður og þrjú hundruð þúsund hraustir kappar með honum;
honum næstur gekk Jóhanan höfuðsmaður og tvö hundruð og áttatíu þúsund manns með honum;
honum næstur Amasja Síkríson, er sjálfviljuglega hafði gengið Drottinn á hönd, og tvö hundruð þúsund hraustir kappar með honum.
En af Benjamín voru: Eljada kappi og tvö hundruð þúsund manns með honum, vopnaðir bogum og buklurum,
og honum næstur Jósabad og hundrað og áttatíu þúsund herbúinna manna með honum.
Þessir voru þeir, er konungi þjónuðu, auk þeirra, er konungur hafði sett í víggirtar borgir í öllu Júdalandi.