Síðari Kroníkubók 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 16

Á þrítugasta og sjötta ríkisári Asa fór Baesa Ísraels-konungur herför á móti Júda og víggirti Rama, svo að enginn maður gæti komist út eða inn hjá Asa Júda-konungi.

Þá tók Asa silfur og gull úr fjárhirzlum húss Drottins og konungshallarinnar og sendi Benhadad Sýrlands-konungi, er bjó í Damaskus, með þessari orðsending:

Sáttmáli er milli mín og þín, milli föður míns og föður þíns; sjá, eg sendi þér silfur og gull: skalt þú nú rjúfa bandalag þitt við Baesa Ísraelskonung, svo að hann hafi sig á burt frá mér.

En Benhadad tók vel máli Asa konungs og sendi hershöfðingja sína móti borgum Ísraels og unnu þeir Íjón, Dan og Abel-Maím og öll forðabúr í Naftalí-borgum.

Þegar Baesa spurði það, lét hann af að víggirða Rama og hætti við starf sitt.

En Asa konungur bauð út öllum Júdamönnum, og fluttu þeir burt steinana og viðinn, sem Baesa hafði víggirt Rama með, og víggirti hann með þeim Geba og Mizpa.

En um þetta leyti kom Hananí sjáandi til Asa Júda-konungs og sagði við hann: Sakir þess að þú studdist við Sýrlands-konung, en studdist ekki við Drottin, Guð þinn, sakir þess er her Sýrlands-konungs genginn þér úr greipum.

Voru ekki Blálendingar og Líbýumenn mikill her, með afarmarga vagna og riddara? En af því þú studdist við Drottin, gaf hann þá þér á vald.

Því að augu Drottins hvarfla um alla jörðina, til þess að hann megi sýna sig mátkan þeim til hjálpar, sem eru heils hugar við hann. Þér hefir farið heimskulega í þessu, því að héðan í frá munu menn stöðugt eiga í ófriði við þig.

En Asa rann í skap við sjáandann og setti hann í stokkhúsið, því að hann var honum reiður fyrir þetta. Asa sýndi og sumum af lýðnum ofríki um þessar mundir.

En saga Asa er frá upphafi til enda rituð í bókum Júda- og Ísraels-konunga.

Á þrítugasta og níunda ríkisári sínu gjörðist Asa fótaveikur og varð sjúkleiki hans mjög mikill. En einnig í sjúkleik sínum leitaði hann ekki Drottins, heldur læknanna.

Og Asa lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og dó á fertugasta og fyrsta ríkisári sínu.

Og hann var grafinn í gröf sinni, er hann hafði látið höggva út handa sér í Davíðsborg. Og hann var lagður á líkbekk, er fyltur var kryddjurtum og alls konar smyrslum, blönduðum ilmreykelsi, og afarmikil brenna var gjörð honum til heiðurs.