Síðari Kroníkubók 18Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 18

Og Jósafat hlotnaðist afarmikil auðlegð og sæmd og hann mægðist við Akab.

Eftir nokkur ár fór hann á fund Akabs til Samaríu. Þá slátraði Akab fjölda sauða og nauta handa honum og mönnum þeim, er með honum voru, og ginti hann að fara með sér til að herja á Ramót í Gíleað.

Þá mælti Akab Ísraels-konungur við Jósafat Júda-konung: Hvort munt þú fara með mér til Ramót í Gíleað? Hann svaraði honum: Eitt skal yfir báða ganga, mig og þig, mína þjóð og þína þjóð; skal eg fara með þér til bardagans.

Og Jósafat sagði við Ísraels-konung: Gakk þú fyrst til frétta og vit, hvað Drottinn segir.

Þá stefndi Ísraels-konungur saman spámönnunum, fjögur hundruð manns, og sagði við þá: Á eg að fara og herja á Ramót í Gíleað eða á eg að hætta við það? Þeir svöruðu: Far þú, og Guð mun gefa hana í hendur konungi.

En Jósafat mælti: Er hér ekki enn einhver spámaður Drottins, að vér mættum leita frétta hjá honum?

Ísraels-konungur mælti til Jósafats: Enn er einn eftir, er vér gætum látið ganga til frétta við Drottin, en mér er lítið um hann gefið, því að hann spáir mér aldrei góðu, heldur ávalt illu; hann heitir Míka Jimlason. En Jósafat sagði: Eigi skyldi konungur svo mæla.

Þá kallaði Ísraels-konungur einn af hirðmönnunum og mælti: Sæk sem skjótast Míka Jimlason.

En Ísraels-konungur og Jósafat Júda-konungur sátu hvor í sínu hásæti, skrýddir purpuraklæðum úti fyrir borgarhliði Samaríu, og allir spámennirnir spáðu frammi fyrir þeim.

Þá gjörði Zedekía Kenaanason sér horn úr járni og mælti: Svo segir Drottinn: Með þessum munt þú reka Sýrlendinga undir, unz þú hefir gjöreytt þeim.

Og allir spámennirnir spáðu á sömu leið og sögðu: Far þú til Ramót í Gíleað; þú munt giftudrjúgur verða, og Drottni mun gefa hana í hendur konungi.

En sendimaðurinn, sem farinn var að sækja Míka, mælti til hans á þessa leið: Sjá, spámennirnir hafa einum munni boðað konungi hamingju; mæl þú sem þeir og boða þú hamingju.

En Míka mælti: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, það sem Guð minn til mín talar, það mun eg mæla.

Og er hann kom til konungs, mælti konungur til hans: Míka, eigum vér að fara og herja á Ramót í Gíleað, eða eigum vér að hætta við það? Þá sagði hann: Farið, þér munuð giftudrjúgir verða, og þeir munu gefnir verða yður á vald!

Þá sagði konungur við hann: Hversu oft á eg að særa þig um, að þú segir mér eigi annað en sannleikann í nafni Drottins.

Þá mælti hann: Eg sá allan Ísrael tvístrast um fjöllin eins og hirðislausa sauði, og Drottins sagði: Þessir hafa engan herra; fari þeir í friði hver heim til sín.

Þá sagði Ísraels-konungur við Jósafat: Fer nú eigi sem eg sagði þér: hann spáir mér eigi góðu, heldur illu einu?

Þá mælti hann: Eigi er svo. Heyrið orð Drottins! Eg sá Drottinn sitja í hásæti sínu og allan himins her standa á tvær hendur honum.

Og Drottinn sagði: Hver vill ginna Akab Ísraels-konung til þess að fara til Ramót í Gíleað og falla þar? Og einn sagði þetta og annar hitt.

Þá gekk fram andi, staðnæmdist frammi fyrir Drottni og mælti: Eg skal ginna hann. Og Drottinn sagði við hann: Með hverju?

Hann mælti: Eg ætla að fara og verða lygiandi í munni allra spámanna hans. Þá mælti hann: Þú skalt ginna hann og þér mun takast það. Far og gjör svo!

Þannig hefir þá Drottinn lagt lygianda í munn þessum spámönnum þínum, þar sem Drottinn hefir þó ákveðið að leiða yfir þig ógæfu.

Þá gekk að Zedekía Kenaanason, laust Míka kinnhest og mælti: Hvaða leið hefir andi Drottins farið frá mér til þess að tala við þig?

Þá mælti Míka: Það munt þú sjá á þeim degi, er þú fer í felur úr einu herberginu í annað.

Þá mælti Ísraels-konungur: Takið Míka og færið hann Amón borgarstjóra og Jóas konungssyni

og segið: Svo segir konungur: Kastið manni þessum í dýflissu og gefið honum brauð og vatn af skornum skamti, þar til er eg kem aftur heill á húfi.

Þá mælti Míka: Komir þú aftur heill á húfi, þá hefir Drottinn eigi talað fyrir minn munn. Og hann mælti: Heyri það allir lýðir!

Síðan fóru þeir Ísraels-konungur og Jósafat Júda-konungur til Ramót í Gíleað.

Og Ísraels-konungur sagði við Jósafat: Eg mun klæðast dularbúningi og ganga í orustuna, en þú skalt vera klæddur búningi þínum. Klæddist þá Ísraels-konungur dularbúningi og gengu þeir í orustuna.

En Sýrlands-konungur hafði boðið foringjunum fyrir Vagnliði sínu á þessa leið: Þér skuluð eigi berjast við neinn, hvorki smáan né stóran, nema Ísraels-konung einan.

Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu Jósafat, sögðu þeir: Þetta er Ísraels-konungurinn! og umkringdu hann til að berjast við hann. Þá kallaði Jósafat hátt og Drottins hjálpaði honum og Guð ginti þá burt frá honum.

Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu, að það var ekki Ísraels-konungur, þá hættu þeir að elta hann.

En maður nokkur lagði ör á streng og skaut af handahófi, og kom á ísraels-konung milli brynbeltis og panzara. Þá mælti hann við kerrusveininn: Snú þú við og kom mér burt úr bardaganum, því að eg er sár.

Var bardaginn hinn harðasti um daginn og Ísraels-konungur stóð í vagninum andspænis Sýrlendingum alt til kvelds, og dó hann um sólsetur.