Síðari Konungabók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 9

En Elísa spámaður kallaði einn af spámannasveinunum og sagði við hann: Gyrð þú lendar þínar, tak þessa olíuflösku með þér og far til Ramót í Gíleað.

Og er þú ert þangað kominn, skalt þú svipast þar um eftir Jehú Jósafatssyni, Nimsísonar. Gakk síðan til hans og bið hann standa upp frá félögum sínum og far með hann inn í insta herbergið.

Því næst skalt þú taka olíuflöskuna, hella yfir höfuð honum og segja: Svo segir Drottinn: Eg smyr þig til konungs yfir Ísrael. Opna þú síðan dyrnar og flýt þér burt og dvel eigi.

Fór þá sveinninn, sveinn spámannsins, til Ramót í Gíleað.

En er hann ko þangað, sátu herforingjarnir þar saman; og hann mælti: Eg á erindi við þig, herforingi! En Jehú svaraði: Við hvern af oss? Hann svaraði: Við þig, herforingi!

Þá stóð hann upp og gekk inn í húsið. Og hann helti olíu yfir höfuð honum og sagði við hann: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Eg smyr þig til konungs yfir lýð Drottins, yfir Ísrael.

Og þú skalt útrýma ætt Akabs, herra þíns, svo að eg fái þann veg komið fram hefndum á Ísebel fyrir blóð þjóna minna, spámannanna, og fyrir blóð allra þjóna Drottni.

Já, öll ætt Akabs skal fyrirfarast, og eg mun uppræta fyrir Akab hvern karlmann, bæði þræl og frelsingja í Ísrael.

Og eg mun fara með ætt Akabs, eins og með ætt Jeróbóams Nebatssonar og ætt Baesa Ahíasonar.

En ísebel skulu hundar eta í landareign Jesreelborgar, og enginn skal jarða hana. Síðan lauk hann upP hurðinni og ílýtti sér burt.

En er Jehú kom út til þjóna herra síns, sögðu þeir við hann: Er nokkuð að? Hvers vegna er þessi vitfirringur til þín kominn? Hann svaraði þeim: Þér þekkið manninn og tal hans.

Þá sögðu þeir: Það er ósatt mál! Seg oss það. Þá sagði hann: Svo og svo hefir hann við mig talað og sagt: Svo segir Drottinn: Eg smyr þig til konungs yfir Ísrael.

Þá tóku þeir í skyndi hver sína yfirhöfn og lögðu fyrir fætur honum á sjálfar tröppurnar, þeyttu lúðurinn og hrópuðu: Jehú er orðinn konungur!

Þannig hóf Jehú Jósafatsson, Nimsísonar, samsæli gegn Jóram, en Jóram og allur Ísrael hafði varið Ramót í Gíleað fyrir Hasael Sýrlands-konungi.

En Síðan hafði Jóram konungur snúið aftur; til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum, þá er hann barðist við Hasael Sýrlands-konung. En Jehú mælti: Sé það vilji yðar, þá látið engan undan komast út úr borginni, til þess að segja tíðindin í Jesreel.

Síðan steig Jehú á vagn sinn og hélt til Jesreel, því að þar lá Jóram, og Ahasja Júda-konungur var kominn þangað til að vitja um Jóram.

En sjónarvörðurinn stóð upp! á turninum í Jesreel, og er hann sá flokk Jehús koma, sagði hann: Eg sé flokk manna. Þá mælti Jóram: Tak riddara og send móti þeim; til þess að spyrja þá, hvort þeir fari með friði.

Riddarinn fór í móti honum og sagði: Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði. En Jehú svaraði: Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér. Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: Sendimaðurinn er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur.

Þá sendi hann annan riddara, og ef hann kom til þeirra, sagði hann: Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði. En Jehú svaraði: Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér.

Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: Hann er kominD til þeirra, en kemur ekki aftur. Er þar ekið, sem aki þar Jehú Níms! son, því að hann ekur eins og vitlaus maður.,

Þá bauð Jóram að beita fyrir vagn sinn. Og er beitt hafði verið fyrir vagn hans, fóru þeir Jóram Ísraels-konungur og Ahasja Júda-konungur af stað, hvor á sínum vagni; fóru þeir í móti Jehú og hittu hann? á landspildu Nabóts Jesreelíla.

En er Jóram sá Jehú, sagði hann: Fer þú með friði, Jehú? Hann svaraði: Hvað er um frið að ræðð, meðan Ísebel móðir þín heldur áfram með hórdóm sinn og hina marg: víslegu töfra sína?

Þá sneri Jóram við og lagði á flótta og kallaði til Ahasja: Svik, Ahasja!

En Jehú þreif boga sinn og skaut Jóra milli herða, svo að örin gekk í gegn um hjartað, og hné hann niður vagni sínum.

Þá sagði hann við Bídkar, riddara sinn: Tak hann og kasta honum á landspildu Nabóts Jesreelíta, því að þú manst víst að eg og þú riðum báðir á eftir Akab föður hans, þá er Drottinn kvað upp þessi dómsorð gegn honum:

Sannarlega sá eg í gær blóð Nabóts og blóð barna hans, segir Drottinn, og mun eg launa þér á landspildu þessari, segir Drottinn. Tak hann því og kasta honum á landspilduna eftir orði Drottins.

Þegar Ahasja Júda-konungur sá þetta, flýði hann í áttina til garðhússins. En Jehú elti hann og sagði: Hann líka! Skjótið hann í vagninum! Og þeir skutu hann á Gúr-stígnum, sem er hjá Jibleam. En hann flýði til Megiddó og dó þar.

Síðan settu menn hans hann A vagn og fluttu hann til Jerúsalem og jörðuðu hann í gröf hans hjá feðrum hans í borg Davíðs.

En Ahasja hafði orðið konungur í Júda á ellefta ríkisári Jórams Akabssonar.

Nú kom Jehú til Jesreel. En er Ísebel frétti það, smurði hún sig í kring um augun, skrýddi höfuð sitt og horfði út um gluggann.

Í kring um augun, skrýddi höfuð sitt og horfði út um gluggann. Og er Jehú kom í hliðið, kallaði hún: Hvernig líður Zimrí, sem myrti herra sinn?

En hann leit upp Í gluggann og mælti: Hver er með mér, hver Og er tveir eða þrír hirðmenn litu út tl hans,

sagði hann: Kastið henni ofan! Og þeir köstuðu henni ofan, og slettist þá blóð hennar í vegginn og hestana, og tróðu þeir hana undir fótunum.

En hann Sekk inn og át og drakk; síðan sagði hann: Lítið eftir þessari bölvuðu konu og jarðið hana, því að konungsdóttir er hún.

Þá fóru þeir, til þess að jarða hana, en fundu ekkert af henni, nema hauskúpuna og fætur og hendur.

Og er þeir komu aftur og sögðu honum frá, mælti hann: Rætast nú orð Drottins, þau er hann talaði fyrir munn þjóns síns Elía frá Tisbe: Á landareign Jesreelborgar skulu hundar eta hold Ísebelar,

og hræ Ísebelar skal liggja á landareign Jesreelborgar sem tað á túni, svo að menn skulu ekki geta sagt: Það er Ísebel.