Síðari Konungabók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 8

Og Elísa talaði við konuna, er soninn átti, sem hann hafði lífgað, á þessa leið: Tak þig upp og far burt með fólk þitt og sezt þú að einhverstaðar erlendis, því að Drottinn kallar sjö ára hallæri yfir landið, og er það þegar komið.

Þá tók konan sig upp og gjörði eins og guðsmaðurinn sagði, fór burt með fólk sitt og dvaldist sjö ár í Filistalandi.

En að sjö árunum liðnum kom konan aftur heim frá Filistalandi og lagði af stað, til þess að biðja konung ásjár um hús sitt og akra.

Konungur var þá að tala við Gehasí, þjón guðsmannsins, og sagði: Seg mér af öllum stórmerkjunum, sem Elísa hefir gjört.

Og er hann var að segja konungi, hvernig hann hefði lífgað hinn dána, þá kom konan, er soninn átti, sem hann hafði lífgað, og bað konung ásjár um hús sitt og akra. Þá sagði Gehasí: Minn herra konungur! þetta er konan, og þetta er sonur hennar, sá er Elísa lífgaði.

Konungur spurði konuna, og sagði hún honum frá. Fékk konungur ben einn af hirðmönnunum og sagði við hann: Sjá þú um að hún fé! aftur alt, sem hún á, svo og allan afrakstur akranna frá þeim degi, er hún fór úr landi, alt til þessa dags.

Og Elísa kom til Damaskus. Þá lá Benhadad Sýrlands-konungur sjúkur. Og er honum var sagt: Guðsmaðurinn er kominn hingað,

Þá sagði konungur við Hasael: Tak með þér gjöf nokkura og far til fundar við guðsmanninn og lát hann ganga til frétta við Drottin, hvort eg muni aftur heill verða af sjúkleik þessum.

Hasael fór þá til fundar við hann og tók með sér gjöf nokkura, alls konar gersemar úr Damaskus, klyfjar á fjörutíu úlfalda. Og er hann kom, gekk hann fyrir hann og mælti: Sonur þinn, Benhadad Sýrlands-konungur, sendir mig til þín og lætur spyrja: Mun eg aftur heill verða af sjúkleik þessum?

Elísa svaraði honum: Far og seg honum: Víst munt þú heill verða, þótt Drottinn hafi birt mér, að hann muni deyja.

Og hann starði fram fyrir sig og skelfdist harla mjög; og guðsmaðurinn grét.

Þá sagði Hasael: Hví grætur þú, herra minn? Hann svaraði: Af því að eg veit, hvílík böl þú munir búa Ísraelsmönnum. Þú munt leggja eld í víggirtar borgir þeirra, drepa æskumenn þeirra með sverði, slá ungbörnum þeirra niður við og rista á kvið þungaðar konur þeirra.

Hasael svaraði: Hvað er þjónn þinn, hundurinn sá, að hann megi vinna slík stórvirki? Þá mælti Elísa: Drottinn hefir sýnt mér þig svo sem konung yfir Sýrlandi.

Síðan fór hann burt frá Elísa, og er hann kom til herra síns, sagði hann við hann: Hvað sagði Elísa við þig? Hann svaraði: Hann sagði mér að þú mundir áreiðanlega heill verða.

En daginn eftir tók hann ábreiðu, dýfði henni í vatn og breiddi hana yfir andlit honum, svo að hann dó. Og Hasael tók ríki eftir hann.

Og á fimta ríkisári Jórams Akabssonar Ísraels-konungs varð Jóram Jósafatsson konungur í Júda.

Hann var þrjátíu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og átta ár ríkti hann í Jerúsalem.

Og hann fetaði í fótspor Ísraels-konunga, eins og Akabs ætt gjörði; því að hann var kvæntur dóttur Akabs. Þannig gjörði hann það, sem ilt var í augum Drottins.

En Drottinn vildi ekki afmá Júda, vegna Davíðs þjóns síns, samkvæmt því, er hann hafði heitið honum, að gefa honum ávalt lampa fyrir augliti hans.

Á hans dögum brutust Edómítar undan yfirráðum Júda og tóku konung yfir sig.

Þá fór Jóram með öllu vagnliðinu yfir til Zaír. En hann reis um nóttina og barði á Edómítum, sem héldu honum í herkví, svo og á foringjum vagnliðsins, og flýði liðið til heimkynna sinna.

Þannig brutust Edómítar undan yfirráðum Júda og er svo enn í dag. Þá brauzt og Líbna undan um sama leyti.

En það, sem meira er að segja um Jóram og alt sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.

Og Jóram lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs. Og Ahasja sonur hans tók ríki eftir hann.

Á tólfta ríkisári Jórams Akabssonar Ísraels-konungs tók ríki Ahasja, Jóramsson Júda-konungs.

Ahasja var tuttugu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og ríkti hann eitt ár í Jerúsalem. En móðir hans hét Atalía, sonardóttir Omrí Ísraels-konungs.

Hann fetaði í fótspor Akabs ættar og gjörði það sem ilt var í augum Drottins, eins og ætt Akabs, því að hann var í mægðum við ætt Akabs.

Og hann fór herför með Jóram Akabssyni í móti Hasael Sýrlands-konungi, til Ramót í Gíleað, en Sýrlendingar særðu Jóram.

Þá sneri Jóram konungur aftur, til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum við Rama, þá er hann barðist við Hasael Sýrlands-konung. En Ahasja Jóramsson Júda-konungur fór ofan til Jesreel, til þess að vitja um Jóram Akabsson, af því að hann lá sjúkur.