Gamla testamentiðSaga
Þegar Drottinn ætlaði að láta Elía fara til himins í stormviðri, voru þeir Elía og Elísa á leið frá Gilgal.
Þá sagði Elía við Elísa: Vertu hér kyrr, því að Drottinn hefir sent mig til Betel. En Elísa svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir, mun eg eigi við þig skilja. Fóru þeir þá ofan til Betel.
Gengu þá spámannasveinar þeir, er voru í Betel, út á móti Elísa og sögðu við hann: Veizt þú að Drottinn ætlar í dag að nema herra þinn burt yfir höfði þér? Hann svaraði: Veit eg það líka; verið hljóðir!
Þá sagði Elía við hann: Elísa, vertu hér kyrr, því að Drottinn hefir sent mig til Jeríkó. Hann svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir, mun eg eigi við þig skilja. Fóru þeir þá til Jeríkó.
ó gengu spámannasveinar þeir, er voru í Jerikó, til Elísa og sögðu við hann: Veizt þú að Drottinn ætlar í dag að nema herra þinn burt yfir höfði þér? Hann svaraði: Veit eg það Líka; verið ldjóðir!
Þá sagði Elía við hann: Vertu hér kyrr, því að Drottinn hefir sent mig til Jórdanar. Hann svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir, mun eg eigi við þig skilja. Fóru þeir þá báðir saman.
En fimtíu manns af spámannasveinunum fóru og námu staðar til hliðar í nokkurri fjarlægð, en hinir báðir gengu að Jórdan.
Þá tók Elía skikkju sína, braut hana saman og sló á vatnið; skifti það sér þá til beggja hliða, en þeir gengu báðir yfir um á þurru.
En er þeir voru komnir yfir um, sagði Elía við Elísa: Bið þú mig einhvers, er eg megi veita þér áður en eg verð numinn burt frá þér. Elísa svaraði: Mættu mér þá hlotnast tveir hlutar af andagift þinni.
Þá mælti hann: Til mikils hefir þú mælst; en ef þú sér mig, er eg verð numinn burt frá þér, þá mun þér veitast það, ella eigi.
En er þeir héldu áfram og voru að tala saman, þá kom alt í einu eldlegur vagn og eldlegir hestar og skildu þá að, og Elía fór til himins í stormviðri.
Og er Elísa sá það, kallaði hann: Faðir minn, faðir minn, þú Ísraels vagn og riddarar! Og hann sá hann ekki frama! Þá þreif hann í klæði sín og reif þau sundur í tvo hluti.
Síðan tók hann upp skikkju Elía, er fallið hafði af honum, sneri við og gekk niður á Jórdanbakka,
tók skikkju Elía, er fallið hafði af honum; sló á vatnið og sagði: Hvar er nú Drottinn, Guð Elía? En er hann sló á vatnið, skifti það sér til beggja hliða, en Elísa gekk yfir um.
En er spámannasveinarnir í Jeríkó sáu það hinumegin, sögðu þeir: Andi Elía hvílir yfir Elísa. Gengu þeir í móti honum, lutu til jarðar fyrir honum
og sögðu við hann: Sjá, hér eru fimtíu röskir menn með þjónum þínum, lát þá fara og leita að herra þínum, ef andi Drottins kynni að hafa hrifið hann og varpað honum á eitthvert fjallið eða ofan í einhvern dalinn. En hann mælti: Eigi skuluð þér senda.
En €F þeir lögðu mjög að honum, mælti hann: Sendið þér þá. Sendu þei! þá fimtíu manns, og leituðu þeir hans í þrjá daga, en fundu hann ekk!
Sneru þeir þá aftur til Elísa, og var hann þá enn í Jeríkó. Þá sagði hann við þá: Sagði eg yður ekki, að þér skylduð ekki fara?
Og borgarmenn sögðu við Elísa: Borg þessi liggur að vísu vel, eins og þú sjálfur sér, herra, en vatnið er vont og landið veldur þi að konur fæða fyrir tímann.
Hann sagði við þá: Færið mér af skál og látið í hana satt. Þeir gjörðu svo.
Og hann gekk út að uppsprettu vatnsins, kastaði saltinu í hana og mælti: Svo segir Drottinn: Eg gjöri vatn þetta heilnæmt; upp frá þessu skal það eigi valda dauða né ótímaburði.
Þá varð vatnið heilnæmt samkvæmt orði Elísa, því er hann hafði talað, og er svo enn í dag.
Þaðan hélt hann til Betel. Og er hann gekk upp veginn, gengu smásveinar út úr borginni, hæddu hann og kölluðu til hans: Kom hingað, skalli; kom hingað, skalli!
Sneri hann sér þá við, og er hann sá þá, formælti hann þeim í nafni Drottins. Þá komu tvær birnur út úr skóginum og rifu í sundur fjörutíu og tvö af börnunum.
Þaðan fór hann til Karmel-fjalls og sneri þaðan aftur til Samaríu.