Síðari Konungabók 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 3

Og Jóram, sonur Akabs, varð konungur í Samaríu yfir Ísrael á átjánda ríkisári Jósafats Júda-konungs og ríkti tólf ár.

Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, þó ekki eins og faðir hans og móðir hans, því að hann tók burt Baals-merkissteinana, sem faðir hans hafði gjöra látið.

En við syndir Jeróbóams Nebatssonar, er hann hafði komið Ísrael til að drýgja, hélt hann fast og lét ekki af þeim.

En Mesa, konungur í Móab, átti miklar hjarðir; greiddi hann Ísraels-konungi í skatt hundrað þúsund lömb og ull af hundrað þúsund hrútum.

En er Akab var dáinn, brauzt Móabs-konungur undan Ísraels-konungi.

Lagði Jóram konungur þá af stað frá Samaríu og kannaði allan Ísrael.

Hann sendi og þegar til Jósafats Júda-konungs og lét segja honum: Móabs-konungur hefir brotist undan mér; vilt þú fara með mér í hernað á móti Móabítum? Fara mun eg, svaraði hann, eg sem þú, mín þjóð sem þín þjóð, mínir hestar sem þínir hestar.

Og hann sagði: Hvaða leið eigum við að fara? Hinn svaraði: Leiðina um Edómheiðar.

Fóru þeir nú af stað: Ísraels-konungur, Júda-konungur og konungurinn í Edóm. Og er þeir höfðu farið sjö dagleiðir, hafði herinn ekkert vatn og ekki heldur skepnurnar, sem þeir höfðu með sér.

Þá sagði Ísraels-konungur: Æ, Drottinn hefir kallað þessa þrjá konunga, til þess að selja þá í hendur Móabítum.

En Jósafat mælti: Er hér enginn spámaður Drottins, að vér getum látið hann ganga til frétta við Drottin? Þá svaraði einn af þjónum Ísraels-konungs og sagði: Hér er Elísa Safatsson, sem helt hefir vatni á hendur Elía.

Jósafat sagði: Hjá honum er orð Drottins! Síðan gengu þeir Ísraels-konungur, Jósafat og konungurinn í Edóm ofan til hans.

En Elísa sagði við Ísraels-konung: Hvað á eg saman við þig að sælda? Gakk þú til spámanna föður þíns og til spámanna móður þinnar. En Ísraels-konungur svaraði honum: Nei, því að Drottinn hefir kallað þessa þrjá konunga, til þess að selja þá í hendur Móabítum.

Þá mælti Elísa: Svo sannarlega sem Drottinn hersveitanna lifir, sá er eg þjóna: væri það ekki vegna Jósafats Júda-konungs, þá skyldi eg ekki renna til þín auga né virða þig viðlits.

En sækið þér nú harpara. En í hvert sinn sem harparinn sló hörpuna, hreif hönd Drottins hann.

Og hann mælti: Svo segir Drottinn: Gjörið gryfju við gryfju í dal þessum,

því að svo segir Drottinn: Þér munuð hvorki sjá vind né regn, og þó mun þessi dalur fyllast vatni, svo að þér megið drekka, svo og her yðar og skepnur.

En Drottinn þykir þetta of lítið, hann mun og gefa Móabíta í hendur yðar.

Og þér munuð vinna allar víggirtar borgir og allar úrvalsborgir, fella öll aldintré og stemma allar vatnslindir, og öllum góðum ökrum munuð þér spilla með grjóti.

En morguninn eftir, í það mund er matfórnin er fram borin, kom alt í einu vatn úr áttinni frá Edóm, svo að landið fyltist vatni.

En er allir Móabítar heyrðu, að konungarnir væru komnir til þess að herja á þá, var öllum boðið út, er vopnum máttu valda, og námu þeir staðar á landamærunum.

En er þeir risu um morguninn og sólin skein á vatnið, sýndist Móabítum álengdar vatnið vera rautt sem blóð.

Þá sögðu þeir: Þetta er blóð! Konungunum hlýtur að hafa lent saman og þeir hafa unnið hvor á öðrum, og nú er að hirða herfangið, Móabítar!

En er þeir komu að herbúðum Ísraels, þustu Ísraelsmenn út og börðu á Móabítum, svo að þeir flýðu fyrir þeim; síðan brutust þeir inn í landið og unnu nýjan sigur á Móabítum.

En borgirnar brutu þeir niður, og á alla góða akra vörpuðu þeir sínum steininum hver og fyltu þá grjóti, og allar vatnslindir stemdu þeir og öll aldintré feldu þeir, unz eigi var annað eftir en steinmúrarnir í Kír-Hareset; umkringdu slöngumennirnir hana og köstuðu á hana.

En er Móabs-konungur sá, að hann mundi fara halloka í orustunni, tók hann með sér sjö hundruð manna, er sverð báru, til þess að brjótast út þar sem Edóm-konungur var fyrir, en þeir gátu það ekki.

Þá tók hann frumgetinn son sinn, er taka átti ríki eftir hann, og fórnaði honum í brennifórn á múrnum. Kom þá mikil reiði yfir Ísrael, og héldu þeir burt þaðan og hurfu aftur heim í land sitt.