Síðara Þessaloníkubréf 2Krans-útgáfa

Síðara Þessaloníkubréf 2

En vér biðjum yður, bræður, að því er snertir tilkomu Drottins vors Jesú Krists og samsöfnun vora til hans,

að þér ekki séuð fljótir á að láta hræða yður eða trufla, hvorki af nokkurum anda né við orð eða bréf, sem væri það frá oss, eins og dagur Drottins væri þegar fyrir höndum.

Látið engan villa yður á nokkurn hátt; því að ekki kemur hann, nema fráhvarfið komi fyrst og maður syndarinnar birtist, sonur glötunarinnar,

hann sem setur sig á móti og rís gegn öllu því, sem kallast Guð eða helgur dómur, svo að hann sest í Guðs musteri og kemur fram eins og hann væri Guð.

Minnist þér ekki þess, að eg sagði yður þetta, meðan eg enn þá var hjá yður?

Og nú, þér vitið, hvað aftrar honum, til þess að hann opinberist á sínum tíma.

Því að leyndardómur lögleysisins er þegar starfandi, einungis að þeim, sem nú aftrar, verði burtu rýmt.

Og þá mun hinn löglausi opinberast — og honum mun Drottinn Jesús tortíma með anda munns síns og að engu gjöra við opinberun tilkomu sinnar —,

en koma hans er fyrir framkvæmd Satans, með alls konar krafti og táknum og undrum lyginnar,

og með alls konar vélum ranglætisins fyrir þá, sem glatast, af því að þeir veittu ekki viðtöku kærleikanum til sannleikans, að þeir mættu verða hólpnir.

Og þess vegna sendir Guð þeim megna villu, til þess að þeir trúi lyginni,

til þess að allir þeir verði sakfeldir, sem ekki hafa trúað sannleikanum, en hafa haft velþóknun á ranglætinu.

En skylt er oss, að þakka ávalt Guði fyrir yður, bræður, elskaðir af drotni, að Guð hefir frá upphafi útvalið yður til frelsunar í helgun andans og trú á sannleikann,

og til þess kallaði hann yður fyrir fagnaðarboðskap vorn, að þér skylduð öðlast dýrð Drottins vors Jesú Krists.

Bræður, standið því stöðugir og haldið fast við þá lærdóma, er yður hafa verið kendir, hvort sem það er munnlega eða með bréfi frá oss.

En sjálfur Drottinn vor Jesús Kristur og Guð, faðir vor, sem elskaði oss og gaf oss í náð eilífa huggun og góða von,

huggi hjörtu yðar og styrki í sérhverju góðu verki og orði.