Síðara Þessaloníkubréf 1Krans-útgáfa

Síðara Þessaloníkubréf 1

Páll og Silvanus og Tímóteus til kirkju Þessaloníkumanna í Guði föður vorum og drotni Jesú Kristi.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður og drotni Jesú Kristi.

Skylt er oss bræður, að þakka ætíð Guði fyrir yður eins og maklegt er; því að trú yðar eykst stórum og kærleiki sérhvers yðar allra, hver til annars, fer vaxandi,

svo að vér sjálfir hrósum oss af yður í söfnuðum Guðs fyrir þolgæði yðar og trú í öllum ofsóknum yðar og þrengingum þeim, er þér þolið,

og er þetta augljóst merki um hinn réttláta dóm Guðs, til þess að þér skulið verða álitnir maklegir guðsríkis, sem þér nú einnig líðið ilt fyrir,

svo sannarlega sem það er rétt hjá Guði að endurgjalda þeim þrengingu, sem að yður þrengja,

en yður, sem þrenging líðið, hvíld með oss, þegar Drottinn Jesús opinberast af himni með englum máttar síns,

í logandi eldi og lætur hegningu koma yfir þá, sem ekki þekkja Guð, og yfir þá, sem ekki hlýða fagnaðarerindi Drottins vors Jesú,

því að þeir munu sæta hegningu, eilífri glötun, fjarri augliti Drottins og fjarri dýrð máttar hans,

þá er hann kemur til að sýna sig dýrðlegan í sínum heilögu og dásamlegan í öllum, sem trúað hafa á þeim degi; því að vitnisburði vorum fyrir yður hefir verið trúað.

Í þeim tilgangi biðjum vér og alla tíma fyrir yður, að Guð vor álíti yður maklega köllunarinnar og fullkomni kröftuglega hvers konar velþóknun á því, sem gott er, og verk trúarinnar,

svo að nafn Drottins vors Jesú verði dýrðlegt í yður og þér í honum eftir náð Guðs vors og Drottins Jesú Krists.