Síðara Þessaloníkubréf 3Krans-útgáfa

Síðara Þessaloníkubréf 3

Að öðru leyti, bræður, biðjið fyrir oss, að orð Drottins megi hafa framgang og vegsamast eins og hjá yður,

og að vér mættum frelsast frá spiltum og vondum mönnum; því að ekki er trúin allra;

en trúr er Drottinn, og hann mun styrkja yður og vernda fyrir hinu vonda. —

En vér höfum það traust til yðar í drotni, að þér bæði gjörið og munið gjöra það, sem vér leggjum fyrir.

En Drottinn leiði hjörtu yðar til kærleika Guðs og þolgæðis Krists.

En vér bjóðum yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér sneiðið yður hjá hverjum þeim bróður, er framgengur óreglulega og ekki eftir þeim lærdómi, sem þeir hafa numið af oss.

Því að sjálfir vitið þér, hvernig á að breyta eftir oss, því að ekki hegðuðum vér oss óreglulega hjá yður,

neyttum ekki heldur brauðs hjá neinum fyrir ekkert, heldur unnum vér með erfiði og striti nótt og dag, til þess að vera ekki neinum yðar til þyngsla.

Ekki af því að vér ekki höfum rétt til þess, heldur til þess að vér gæfum yður sjálfa oss sem fyrirmynd, til að breyta eftir oss.

Því var og það, að þegar vér vorum hjá yður, buðum vér yður: Ef einhver vill ekki vinna, þá skal hann ekki fá að eta.

En vér heyrum, að nokkrir meðal yðar framgangi óreglulega, sem ekkert vinna, heldur gefa sig alla við því, sem þeim kemur eigi við.

Slíkum mönnum bjóðum vér og áminnum þá í drotni Jesú Kristi, að vinna kyrlátlega og eta sitt eigið brauð.

En þér, bræður, þreytist ekki gott að gjöra.

En ef einhver hlýðir ekki orðum vorum í bréfi þessu, þá merkið yður þann mann, að hafa ekkert samfélag við hann, til þess að hann blygðist sín;

en álítið hann þó ekki sem óvin, heldur áminnið hann sem bróður.

En sjálfur Drottinn friðarins gefi yður friðinn, ætíð á allan hátt. Drottinn sé með yður öllum.

Kveðjan er með minni, Páls, eigin hendi, og það er merki á hverju bréfi. Þannig skrifa eg.

Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður öllum.