Síðara Korintubréf 3Krans-útgáfa

Síðara Korintubréf 3

Erum vér nú aftur teknir að mæla fram með sjálfum oss? Eða mundum vér þurfa, eins og sumir, meðmælingabréfa til yðar eða frá yður?

Þér eruð vort bréf, ritað í hjörtum vorum, þekt og lesið af öllum mönnum;

þér eruð augljósir orðnir sem bréf Krists, sem vér höfum unnið að, ekki skrifað með bleki, heldur með anda lifanda Guðs, ekki á steinspjöld, heldur á holdspjöld, sem hjartanu tilheyra.

En þetta traust höfum vér til Guðs fyrir Krist.

Ekki svo, að vér af sjálfum oss séum hæfir til að hugsa nokkuð upp eins og af sjálfum oss, heldur er hæfileiki vor frá Guði,

honum sem og hefir gjört oss hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála, ekki bókstafs, heldur anda; því að bókstafurinn deyðir, en andinn lífgar.

En ef þjónusta dauðans, sem letruð var og höggvin á steina, kom fram í dýrð, svo að ekki gátu Ísraels synir horft á ásjónu Móse, vegna ljóma ásýndar hans, sem þó varð að engu,

hversu miklu fremur mun þá þjónusta andans koma fram í dýrð?

Því að ef þjónusta fyrirdæmingarinnar var dýrðleg, þá er þjónusta réttlætisins enn þá miklu auðugri að dýrð.

Því að í þessari grein verður jafnvel hið dýrðlega ekki dýrðlegt, vegna hinnar yfirgnæfandi dýrðar.

Því að ef það, sem að engu verður, kom fram með dýrð, þá hlýtur miklu fremur hið varanlega að koma fram í dýrð.

Með því að vér nú höfum slíka von, þá komum vér fram með mikilli djörfung,

og gjörum ekki eins og Móse, sem setti skýlu fyrir andlit sér, til þess að Ísraels synir skyldu ekki horfa á endalok þess, sem að engu átti að verða.

En hugsanir þeirra urðu forhertar, því að alt til þessa dags hvílir sama skýlan yfir upplestri hins gamla sáttmála, því að ekki er það afhjúpað fyrir þeim, að hann verður að engu í Kristi.

Já alt til þessa dags hvílir skýla yfir hjörtum þeirra, hvenær sem Móse er lesinn.

En hvenær sem þeir snúa sér til Drottins, verður skýlan burtu tekin.

En Drottinn er andi. En þar sem andi Drottins er, þar er frelsi.

En allir vér, sem með óhjúpuðu andliti skoðum í skuggsjá dýrð Drottins, ummyndumst til hinnar sömu myndar, frá dýrð til dýrðar, eins og frá drotni, sem er andi.