En það ásetti eg mér með sjálfum mér, að koma ekki aftur til yðar með hrygð.
Því að ef eg hryggi yður, hver er þá sá sem gleður mig, nema sá sem eg gjöri hryggan?
Og eg hefi skrifað þetta einmitt til þess að eg skyldi ekki hafa hrygð, er eg kæmi, af þeim sem áttu að gleðja mig, þar sem eg hefi það traust til yðar allra, að gleði mín sé gleði yðar allra.
Því að af mikilli þrengingu og hjartans trega skrifaði eg yður með mörgum tárum, ekki til þess að þér skylduð hryggjast, heldur til þess að þér skylduð komast að raun um þann kærleika, sem eg ber til yðar í svo ríkum mæli.
En ef nokkur hefir orðið til þess að hryggja, þá hefir hann hrygt ekki mig, heldur að nokkuru leyti, — að eg gjöri ekki enn meira úr því — yður alla.
Nægileg er þeim manni refsing sú, sem hann hefir hlotið af flestöllum,
svo að þér ættuð nú öllu heldur að fyrirgefa og hugga, til þess að hann sökkvi ekki niður í alt of mikla hrygð.
Fyrir því áminni eg yður að láta kærleikann koma fram við hann.
Því að í þeim tilgangi hefi eg líka skrifað, til þess að komast að raun um staðfestu yðar, hvort þér væruð hlýðnir í hverju sem vera skal.
En hverjum sem þér fyrirgefið nokkuð, honum fyrirgef eg líka, því að einnig það sem eg hefi fyrirgefið, hafi eg fyrirgefið nokkuð, þá hefir það verið vegna yðar fyrir augliti Krists,
til þess að vér yrðum ekki vélaðir af Satan, því að ekki er oss ókunnugt um vélráð hans.
En er eg kom til Tróas vegna fagnaðarerindis Krists, og mér voru þar opnaðar dyr í drotni,
þá hafði eg enga eirð í anda mínum, af því að eg hitti ekki Títus bróður minn, heldur kvaddi eg þá og fór til Makedóníu.
En Guði séu þakkir, sem ávalt lætur oss halda sigurför í Kristi og lætur fyrir oss ilm þekkingar sinnar verða augljósan á hverjum stað.
Því að vér erum góðilmur Krists fyrir Guði meðal þeirra, er hólpnir verða, og meðal þeirra, er glatast;
þeim síðarnefndu ilmur af dauða til dauða, en hinum ilmur af lífi til lífs. Og hver er til þessa hæfur?
Því að ekki erum vér eins og hinir mörgu, er okra með Guðs orð, heldur tölum vér eins og af hreinleik, eins og af Guði frammi fyrir augliti Guðs í Kristi.