Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Með Gat-lagi. Asafs-sálmur.
Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.
Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur.
Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum, við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.
Því að þetta eru lög fyrir Ísrael, réttur fyrir Jakobs Guð.
Hann gjörði það að reglu í Jósef, þá er hann fór út í móti Egiptalandi. Eg heyri mál, sem eg þekki eigi:
Eg hefi losað herðar hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfina.
Þú kallaðir í neyðinni, og eg frelsaði þig, eg bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríba-vötnum. Sela.
Heyr, lýður minn, að eg megi áminna þig, ó að þú, Ísrael, vildir heyra mig!
Enginn annar guð má vera meðal þín og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja.
Eg er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egiptalandi, opna munn þinn, að eg megi fylla hann.
En lýður minn heyrði eigi raust mína og Ísrael var mér eigi auðsveipur;
þá slepti eg þeim í þrjózku hjartna þeirra, þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta.
Ó að lýður minn vildi heyra mig, Ísrael ganga á mínum vegum,
þá skyldi eg skjótt lægja óvini þeirra, og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra;
hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu;
eg skyldi gefa honum hið kjarnbezta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum«.