Saltarinn 80Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 80

Til helgisöngs. Liljulag. Asafs-vitnisburður. Sálmur.

Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem situr uppi yfir kerúbunum, birzt þú í geisladýrð.

Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!

Guð, lát oss rétta við aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?

Þú hefir mettað þá tárabrauði og drykkjað þá tárum ríkulega.

Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra og óvinir vorir gjöra gys að oss.

Guð hersveitanna lát oss rétta við aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

Þú kiplir upp vínvið úr Egiptalandi, stöktir burt heiðingjum, en gróðursettir hann;

bú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fylti landið;

fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans;

hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins.

Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin.

Skógargeltirnir naga hann og öll dýr merkurinnar bíta hann.

Guð hersveitanna, æ snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa,

og varðveit það, sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa.

Hann er brendur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.

Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa;

þá skulum vér eigi víkja frá þér; viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt.

Drottinn, Guð hersveitanna, Lát oss rétta við aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.