Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Asafs-sálmur. Guð, heiðingjar hafa brotist inn í óðal þitt, þeir hafa saurgað þitt heilaga musteri og lagt Jerúsalem í rústir.
Þeir hafa gefið lík þjóna þinna fuglum himins að fæðu og villidýrunum hold dýrkenda þinna.
Þeir hafa úthelt blóði þeirra sem vatni umhverfis Jerúsalem, og enginn jarðaði þá.
Vér erum til háðungar nábúum vorum, til spotts og athlægis þeim, er búa umhverfis oss.
Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að vera eilíflega reiður, á vandlæti þitt að brenna sem eldur?
Hell þú heift þinni yfir heiðingjana, sem eigi þekkja þig, og yfir konungsríki, er eigi ákalla nafn þitt.
Því:að þeir hafa uppetið Jakob og lagt bústað hans í eyði.
SLát oss eigi gjalda misgjörða forfeðra vorra, lát miskunn þína fljótt koma í móti oss, því að vér erum mjög þjakaðir.
Hjálpa þú oss, Guð hjálpræðis vors, sakir dýrðar nafns þíns, frelsa oss og fyrirgef syndir vorar sakir nafns þíns.
Hví eiga heiðingjarnir að segja: Hvar er Guð þeirra? Lát fyrir augum vorum kunna verða á heiðingjunum hefndina fyrir úthelt blóð þjóna þinna.
Lát andvarpanir bandingjanna koma fram fyrir þig, leys þá, sem komnir eru í dauðann, með þínum sterka armlegs,
Og gjald nágrönnum vorum sjöfalt í skaut háðungina, er þeir hafa sýnt þér, Drottinn.
En vér, lýður þinn og gæzluhjörð þín, munum lofa þig um eilífð, kunngjöra lofstír þinn frá kyni til kyns.