Saltarinn 82Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 82

Asafs-sálmur, —— Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna.

Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? Sela.

Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn volaða og fátæka ná rétti sínum;

bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra.

Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í. myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.

Eg hefi sagt: Þér eruð guðir og allir saman synir hins hæsta,

Teu sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum.

SRís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum heiðingjum.