Saltarinn 74Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 74

Asafs-maskil. Hví hefir þú, Guð, útskúfað um eilífð, hví rýkur reiði þín gegn gæzluhjörð þinni?

Haf í minni söfnuð þinn, er þú aflaðir forðum, leystir til þess að vera kynkvísl óðals þíns, Zíonfjall, þar sem þú hefir tekið þér bústað.

Lyft fótum þínum til hinna eilífu rústa, öllu hafa óvinirnir spítt í helgidóminum.

Fjandmenn þínir grenjuðu inni á samkomustað þínum, á.. reistu upp merki sín sem merki.

Þeir gjöra vart við sig eins og menn, sem reiða hátt axir Í þykkum skógi.

Allur útskurður er högginn af honum, með exi og hamri mölvuðu þeir.

Þeir hafa lagt eld í helgidóm þinn, vanhelgað bústað nafns þíns niður að jörðu.

Þeir hugsuðu með sjálfum sér: Vér skulum tortíma þeim öllum, þeir brendu öll samkomuhús Guðs í landinu.

Vér sjáum eigi merki vor, þar er enginn spámaður framar, og enginn er hjá oss, sem veit hve lengi.

Hversu lengi, ó Guð, á fjandmaðurinn að hæða, á óvinurinn að spotta nafn þitt um aldur?

Hví dregur þú að þér hönd þína? Drag hægri hönd þína úr barmi þér og tortím.

Og þó er Guð konungur minn frá fornum tíðum, sá er framkvæmir hjálpræðisverk á jörðu.

Þú klaufst hafið með mætti þínum, þú brauzt sundur höfuð drekans á vatninu;

bú molaðir sundur hausa Levíatans, gafst hann dýrum eyðimerkurinnar að æfi;

þú lézt lindir og læki spretta upp, þú þurkaðir upp sírennandi ár.

Þinn er dagurinn og þín er nóttin, þú gjörðir ljós og sól.

Þú settir öll takmörk jarðarinnar, sumar og vetur hefir þú gjört.

Og samt lastmælir óvinurinn, Drottinn, og heimskur lýður smánar nafn þitt.;

Ofursel eigi villidýrunum sál turtildúfu þinnar; gleym eigi um aldur lífi þinna voluðu.

Gef gætur að sáttmála þínum, því að skúmaskot landsins eru full af ofríkisbústöðum.

Lát eigi þann, er kúgun sætir, snúa aftur með svívirðing, lát hina voluðu og snauðu lofa nafn þitt.

Rís upp, Guð, berst fyrir málefni þínu, minst þú háðungar þeirrar, er þú sætir af heimskingjum liðlangan daginn.

Gleym eigi hrópi fjenda þinna, glaumkæti andstæðinga þinna, þeirri er sífelt stígur upp.