Saltarinn 75Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 75

Til helgisöngs. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð.

Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt segja frá dásemdarverkum þínum.

Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi eg réttvíslega.

Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi eg samt fest stoðir, Sela.

SEg segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!

Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerfir!

Því að hvorki frá austri né vestri, hvorki frá eyðimörkinni né fjöllunum

heldur er Guð sá, sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.

Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi; af því skenkir hann; já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.

En eg vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.

Öll horn óguðlegra verða af höggin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.