Saltarinn 73Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 73

Asafs-sálmur. Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá, sem hjartahreinir eru.

En nærri lá, að fætur mínir hrösuðu; lítið vantaði á, að eg skriðnaði í skrefi.

Því að eg fyllist gremju út af hinum hrokafullu, þegar eg sá gengi hinna óguðlegu.

Því að þeir hafa engar hörmungar að bera, líkami þeirra er heill og hraustur;

þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn.

Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra, þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn.

Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra, girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi.

Þeir spotta og tala af ilsku, mæla kúgunarorð í mikilmensku sinni;

með munni sínum snerta þeir himininn, en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.

Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá og teigar gnóttir vatns.

Þeir segja: Hvernig ætti Guð að vita og hinn hæsti að hafa nokkura þekkingu?

Sjá, þessir menn eru óguðlegir, og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.

Vissulega hefi eg til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar Í sakleysi;

eg þjáist liðlangan daginn, og á hverjum morgni bíður mín hirting.

Ef eg hefði haft í hyggju að tala þannig, sjá, þá hefði eg brugðið trúnaði við kyn barna þinna;

En eg hugsaði um, hvernig eg ætti að skilja það, það var erfitt í augum mínum;

unz eg kom inn í helgidóma Guðs, gaf gætur að afdrifum þeirra:

vissulega setur þú þá á sleipa jörð, þú lætur þá falla í rústir.

Hversu sviplega eru þeir orðnir að auðn, eru liðnir undir lok, tortímdir af skelfingum.

Eins og draum, er maður vaknar, fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú vaknar.

Þegar beiskja var í hjarta mínu og kvölin nísti nýru mín,

þá var eg fáráðlingur og vissi ekkert, var sem skynlaus skepna gagnvart þér.

En eg er ætíð hjá þér, þú heldur í hægri hönd mína;

bú munt leiða mig eftir ályktun þinni og síðan láta mig ná sæmd.

Hvern á eg annars að á himnum? og hafi eg þig, hirði eg eigi um neitt á jörðu.

Þótt hold mitt og hjarta tærist, er Guð bjarg hjarta míns og hlutskifti mitt um eilifð.

Því sjá: þeir, er fyrirláta þig, farast, þú eyðir öllum þeim, sem eru þér ótrúir.

En mín gæði eru það, að vera nálægt Guði, eg hefi gjört Drottin Guð að athvarfi mínu, til þess að segja frá öllum verkum þínum.