Saltarinn 61Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 61

Til helgisöngs. Með strengjaleik. Eftir Davíð.

Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.

Frá endimörkum jarðar hrópa eg til þín, því að hjarta mitt örmagnast við klett þann, sem er mér of hár. Leið mig,

því að þú ert orðinn mér hæli, örugt vígi gegn óvinum.

Lát mig gista í tjaldi þínu um eilifð, leita hælis í skjóli vængja þinna. Sela.

Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín; þú hefir uppfylt óskir þeirra, er óttast nafn þitt.

Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.

SHann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.

Þá. vil eg lofsyngja nafni þínu um aldur, til þess að efna heit mín dag frá degi.