Saltarinn 62Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 62

Til helgisöngs fyrir Jedútún. Daviðs-sálmur.?

Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.

Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín — eg verð eigi valtur á fótum.

Hversu lengi ætlið þér að ryðjast á einn mann — hversu lengi ætlið þér allir að myrða —, eins og á hallan vegg, eins og á hrynjandi múr.

Þeir ráðgast um það eitt, að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi; þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. Sela.

Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.

Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín — eg verð eigi valtur á fótum.

Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi eg í Guði.

YTreyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum; Guð er vort hæli. Sela.

Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn; á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.

Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra munu; þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan Gaui.

Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi eg heyrt það: hjá Guði er styrkleikur.

Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.