Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu,
þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Zóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsundum manns.
Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss — snú þér aftur að oss.
Þú lézt jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar,
Þú lézt lýð þinn kenna á hörðu, lézt oss drekka vímuvin.
Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. Sela.
Til þess að ástvinir þínir megi frelsast — hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.
Guð hefir sagt í helgidómi sínum: Eg vil fagna; eg vil skifta Sikem, mæla út Súkkót-dal.
ÞEg á Gíleað og eg á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldisproti minn.
Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi eg skónum mínum, yfir Filisteu fagna eg.
Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?
Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.
Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.
Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.