Saltarinn 59Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 59

Til helgisöngs. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið, til þess að drepa hann.

Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð minn, bjarga mér frá fjendum mínum.

Frelsa mig frá illgjörðamönnunum og hjálpa mér gegn morðingjunum;

því sjá, þeir sitja um líf mitt, hinir sterku áreita mig, þótt eg ekkert hafi afbrotið eða syndgað, Drottinn;

þótt eg hafi eigi misgjört, hlaupa þeir að og búast til áhlaups. Vakna þú mér til liðveizlu og lít á!

En þú, Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð, vakna þú til þess að vitja allra heiðingjanna; þyrm eigi neinum fráhverfum syndara. Sela.

Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.

Sjá, það freyðir úr munni þeirra, sverð eru á vörum þeirra, því að — »hver heyrir?«

En þú, Drottinn, hlær að þeim, þú gjörir gys að öllum heiðingjum.

Vígi mitt, um þig vil eg kveða, því að Guð er háborg mín.

Guð kemur í móti mér með náð sinni, Guð lætur mig sjá nægju mína á fjandmönnum mínum.

Drep þá eigi, svo að lýður minn gleymi eigi, lát þá reika fyrir veldi þínu og steyp þeim af stóli, þú Drottinn, skjöldur vor,

sakir syndar munns þeirra, orðsins af vörum þeirra, og lát þá verða veidda í hroka þeirra, og sakir formælinga þeirra og lygi, er þeir tala.

Eyð þeim í reiði, eyð þeim, unz þeir eru eigi framar til, og lát þá kenna á því, að Guð ríkir yfir Jakob, alt til endimarka jarðar. Sela.

Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.

Þeir reika um eftir æti og urra, ef þeir verða eigi saddir.

En eg vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því að þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar.

Vígi mitt, um þig vil eg kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð.