Saltarinn 55Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 55

Til helgisöngs. Með strengjaleik. Davíðs-maskíl.

Hlýð, ó Guð, á bæn mína, fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni.

Veit mér athygli og svara mér; eg kveina í harmi mínum og styn

sakir háreysti óvinarins, sakir hróps hins óguðlega, því að þeir steypa yfir mig ógæfu og ofsækja mig grimmilega.

Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ógnir dauðans falla yfir mig;

Sótti og skelfing er yfir mig komin og hryllingur fer um mig allan,

svo að eg segi: Ó að eg hefði vængi eins og dúfan, þá skyldi eg fljúga burt og finna hvíldarstað,

já, eg skyldi svífa langt burt, eg skyldi gista í eyðimörkinni. Sela.

Eg skyldi flýta mér að leita mér hælis fyrir þjótandi vindum og veðri.

Rugla, Drottinn, sundra tungum þeirra, því að eg sé kúgun og deilur í borginni;

dag og nótt ganga þær um á múrum hennar, en ógæfa og armæða eru þar inni fyrir.

Glötun er inni í henni, ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar.

Því að það er eigi óvinur, sem hæðir mig — það gæti eg þolað, og eigi hatursmaður minn, er hreykir sér yfir mig — fyrir honum gæti eg farið í felur,

heldur þú, jafningi minn, vinur minn og kunningi,

við sem vorum ástúðarvinir, sem gengum Í eindrægni saman Í Guðs hús.

Dauðinn komi yfir þá; stigi þeir lifandi niður tl heljar, því að fiska er í bústöðum þeirra, í hjörtum þeirra.

En eg hrópa til Guðs og Drottins mun hjálpa mér.

Kvöld og morgna og um miðjan dag harma eg og styn, og hann heyrir raust mína.

Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið, svo að þeir geta eigi nálgast mig, því að mótstöðumenn mínir eru margir.

Guð mun heyra, og hann er ríkir frá eilífð mun lægja þá, sela, sem engin umbreyting er hjá og eigi óttast Guð.

Hann lagði hendur á þann, er lifði í sátt við hann, hann rauf sáttmál sitt;

hálla en smjör er andlit hans, en ófriður er í hjarta hans; mýkri en olía eru orð hans, og þó brugðin sverð.

Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér; hann mun eigi að eilífu láta réttllátan mann verða valtan á fótum.

Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið; morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri; en eg treysti þér.