Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð, þá er Filistar gripu hann í Gat.
Ver mér náðugur, Guð, því að menn kremja mig, liðlangan daginn kreppa bardagamenn að mér.
Fjandmenn mínir kremja mig liðlangan daginn, því að margir eru þeir, sem berjast gegn mér.
Þegar eg er hræddur, treysti eg þér.
Með Guðs hjálp mun eg lofa orð hans, Guði treysti eg, eg óttast eigi; hvað getur hold gjört mér?
Liðlangan daginn spilla þeir málefnum mínum, alt það, er þeir hafa upphugsað í gegn mér, er til ills;
þeir áreita mig, þeir sitja um mig, þeir gefa gætur að ferðum mínum, eins og þeir væntu eftir að ná lífi mínu.
Sakir ranglætis þeirra verður þeim engrar undankomu auðið; steyp þjóðunum í reiði þinni, ó Guð.
Þú hefir talið hrakninga mína, tárum mínum er safnað í sjóð þinn, já, rituð í bók þína.
Fyrir því skulu óvinir mínir hörfa undan, er eg hrópa; það veit eg, að Guð liðsinnir mér.
Með Guðs hjálp mun eg lofa orð hans, með hjálp Drottins mun eg lofa orð hans.
Guði treysti eg, eg óttast eigi; hvað geta menn gjört mér?
Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, eg vil gjalda þér þakkarfórnir,
af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun, svo að eg megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins.