Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð,
þá er Sífítar komu og sögðu við Sál: Veiztu að Davíð felur sig hjá oss?
Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn með mætti þínum.
Guð, heyr þú bæn mína, ljá eyra orðum munns míns.
Því að erlendir fjandmenn hefjast gegn mér og ofríkismenn sækjast eftir lífi mínu; eigi hafa þeir Guð fyrir augum. Sela.
Sjá, Guð er mér hjálpari, Drottinn sá, er styður sál mína.
Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma; eyð þeim af trúfesti þinni.
Þá vil eg færa þér sjálfviljafórnir, lofa nafn þitt, Drottinn, að það sé gott;
því að það hefir frelsað mig úr hverri neyð, og auga mitt hefir svalað sér á að horfa á óvini mína.