Saltarinn 53Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 53

Til helgisöngs. Með makalat-lagi. Davíðs-maskíl.

Heimskinginn segir í hjarta sínu: Enginn Guð! Ill og andstyggileg er breytni þeirra; enginn gjörir það sem gott er.

Guð lítur af himni niður á mennina, til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur, sem leiti Guðs.

Allir eru viknir af leið, allir spiltir, enginn gjörir það, sem gott er — ekki einn.

Skyldu þeir ekki fá að kenna á því, illgjörðamennirnir, þeir er eta lýð minn sem brauð væri og ákalla eigi Guð?

Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir, þar sem ekkert er að óttast, því að Guð tvístrar beinum þeirra, er setja herbúðir móti þér; þú lætur þá verða til skammar, því að Guð hefir hafnað þeim.

Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Zíon! Þegar Guð snýr við hag lýðs síns, skal Jakob fagna, Ísrael gleðjast.