Saltarinn 50Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 50

Asafs-sálmur. Alvaldur, Guð, Drottinn talar og kallar á jörðina í frá upprás sólar til niðurgöngu hennar.

Frá Zíon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð.

öGuð vor kemur og þegir ekki. Eyðandi eldur fer fyrir honum og í kring um hann geisar stormurinn.

Hann kallar á himininn uppi og á jörðina, til þess að dæma lýð sinn:

SySafnið saman dýrkendum mínum, þeim er gjört hafa sáttmála við mig með fórnum.

Þá kunngjörðu himnarnir réttlæti hans; því að Guð er sá, sem dæmir. Sela.

Ey»Heyr, þjóð mín, og lát mig tala, Ísrael, og lát mig áminna þig, eg er Drottinn, Guð þinn!

Eigi er það vegna fórna þinna, að eg ávíta þig, brennifórnir þínar eru stöðuglega frammi fyrir mér.

Eg þarf ekki að taka uxa úr húsi þínu, né geithafra úr stíu þinni,

því að mín eru öll skógardýrin og skepnurnar á fjöllum þúsundanna.

Eg þekki alla fugla á fjöllunum og mér er kunnugt um alt það, sem hrærist á mörkinni.

Væri eg hungraður, mundi eg ekki segja þér frá því, því að jörðin er mín og alt, sem á henni er.

Ef eg nauta kjöt, eða drekk eg hafra blóð?

Fær Guði þakkargjörð að fórn og gjald hinum hæsta þannig heit þín,

ákalla mig á degi neyðarinnar: eg mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.

En við hinn óguðlega segir Guð: »Hvernig dirfist þú að telja upp boðorð mín og taka sáttmála minn þér í munn,

þar sem þú þó hatar aga og varpar orðum mínum að baki þér?

Sjáir þú þjóf, leggur þú lag þitt við hann, og við hórkarla hefir þú samfélag.

Þú hleypir munni þínum út í ilsku, og tunga þín bruggar svik.

Þú situr og bakmælir bróður þínum og ófrægir son móður þinnar.

Slíkt hefir þú gjört, og eg ætti að þegja, og þú halda, að eg væri alveg eins og þú? Eg mun hegna þér og endurgjalda þér augljóslega.

Hyggið að þessu, þér sem gleymið Guði, til þess að eg sundurrífi ekki og enginn fái bjargað.

Sá, sem færir þakkargjörð að fórn, heiðrar mig, og þann, sem breytir grand varlega, vil eg láta sjá hjálpræði Guðs.