Saltarinn 51Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 51

Til helgisöngs. Sálmur Davíðs,

þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi!

Þvo vandlega af mér misgjörð mína og hreinsa mig af synd minni;

því að eg þekki sjálfur afbrot mín og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

Gegn þér einum hefi eg syndgað og gjört það, sem ilt er í augum þínum, til þess að þú sért réttlátur, er þú talar, sért hreinn, er þú dæmir.

Sjá, í misgjörð er eg fæddur og í synd gat mig móðir mín.

Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra og í fylgsnum hjartans kennir þú mér vizku!

Hreinsa mig með ýsóp, svo að eg verði hreinn; þvo mig, svo að eg verði hvítari en mjöll.

Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin, sem þú hefir sundurmarið.

Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér af nýju stöðugan anda,

Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,

að eg megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.

Frelsa mig frá blóðsúthellingu, Drottinn, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

Því að þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum — annars mundi eg láta þær í té — og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

Gjör vel við Zíon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!

Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.