Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Fyrir kvenraddir. Til helgisöngs.
Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,
bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!
Munnur minn talar speki og ígrundun hjarta míns er hyggindi.
Eg hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm.
Hví skyldi eg óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með ilsku,
þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.
Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan, né greitt Guði lausnargjald fyrir hann,
því að lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að eilífu,
svo að hann haldi áfram að lifa æfinlega og líti ekki gröfina.
Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.
Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kent lendur við nafn sitt.
Maðurinn í allri sinni vegsemd stenzt ekki, hann verður jafn skepnunum, sem farast.
Svo fer þeim, sem eru þóttafullir, og þeim, sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. Sela.
Þeir stíga niður til heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drotna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, helja verður bústaður þeirra.
En mína sál mun Guð endurleysa,, því að hann mun hrífa mig úr greipum heljar, Sela.
Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil;
því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, dýrð hans fer ekki niður þangað á eftir honum.
Jafnvel þótt hann telji sig sælan meðan hann lifir og menn lofi þig, af því að þér farnast vel,
hann verður þó að fara tl kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið.
Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum, sem farast.