Saltarinn 109Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 109

Til helgisöngs. Daviðs-sálmur. Þú Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður,

því að óguðlegan munn og svikulan munn opna þeir í gegn mér, tala við mig með ljúgandi tungu;

með hatursorðum umkringja þeir mig og áreita mig að ástæðulausu.

Þeir launa mér elsku mína með ofsókn, en eg gjöri ekki annað en biðja.

Þeir launa mér gott með illu og elsku mína með hatri.

Set óguðlegan yfir hann og ákærandinn standi honum til hægri handar;

hann gangi sekur frá dómi og bæn hans verði til syndar.

Dagar hans verði fáir, og annar hljóti embætti hans;

börn hans verði föðurlaus og kona hans ekkja.

Börn hans fari á flæking og verðgang, þau verði rekin burt úr rústum sínum.

Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans og útlendir fjandmenn ræni afla hans;

enginn sýni honum líka og enginn aumkist yfir föðurlausu börnin hans.

Niðjar hans verði afmáðir, nafn hans útskafið í fyrsta ættlið;

misgjörðar feðra hans verði minst af Drottni og synd móður hans eigi úfskafin;

séu þær ætíð fyrir sjónum Drottins og hann afmái minningu þeirra af jörðunni,

sakir þess, að hann mundi eigi eftir að sýna elsku, heldur ofsótti hinn auma og snauða og hinn ráðþrota, til þess að drepa hann.

Hann elskaði bölvunina, hún bitni þá á honum, hann smáði blessunina, hún sé þá fjarri honum;

hann íklæddist bölvuninni sem kufli, hún læsi sig þá inn í innýfli hans sem vatn og í bein hans sem olía,

hún verði honum sem klæði, er hann sveipar um sig, og sem belti, er hann sífett gyrðist.

Þetta séu laun andstæðinga minna frá Drottni og þeirra, er tala út í gegn mér.

En þú, Drottinn Guð, breyt við mig eftir gæzku miskunnar frelsa mig sakir nafns þíns, þinnar,

því að eg er volaður og aumur, hjartað berst ákaft í brjósti mér;

eg hverf sem hallur skuggi, eg er hristur út eins og jarðvargar.

Kné mín skjögra af föstu og hold mitt tærist af olíuskorti.

Eg er orðinn þeim að spotti, þegar þeir sjá mig, hrista þeir höfuðið.

Veit mér lið, Drottinn, Guð minn, hjálpa mér eftir miskunn þinni,

að þeir megi komast að raun um, að það var þín hönd, að það varst þú, Drottinn, sem gjörðir það.

Bölvi þeir, þú munt blessa; verði þeir til skammar, er rísa gegn mér, en þjónn þinn gleðjist.

Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing, sveipi um sig skömminni eins og skikkju.

Eg vil lofa Drottin mikillega með munni mínum, eðal fjölmennis vil eg vegsama hann,;

því að hann stendur aumingjanum til hægri handar, til þess að hjálpa honum gegn þeim, er sakfella hann.