Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur. Svo segir Drottinn við herra minn: Sezt þú mér til hægri handar, þá mun eg leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.
Drottinn réttir út þinn völduga sprota frá Zíon, drotna þú mitt á meðal óvina þinna!
Þjóð þín kemur sjálfboða á herdegi þínum;; í helgu skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns tl þín.
Drottinn hefir svarið og hann iðrar þess eigi: þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkisedeks.
Drottinn er þér til hægri handar, hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
Hann heldur dóm meðal þjóðanna, fyllir alt líkum, hann krosar höfuð um víðan vang.
Á leiðinni drekkur hann úr læknum, þess vegna ber hann höfuðið hátt.