Saltarinn 108Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 108

Ljóð. Davíðs-sálmur.

Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, eg vil syngja og leika, vakna þú, sál mín!

Vakna þú, harpa og gígja, eg vil vekja morgunroðann.

Eg vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

því að miskunn þín er himnum hærri og trúfesti þín nær til skýjanna.

Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

Til þess að ástvinir þínir megi frelsast — hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

Guð hefir sagt í helgidómi sínum: »Eg vil fagna, eg vil skifta Sikem, mæla út Súkkót-dal.

Eg á Gíleað, eg á Manasse og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldisproti minn.

Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi eg skónum mínum, yfir Filisteu fagna eg.

Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?

Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.

Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.