Gamla testamentiðSpámennirnir
Orð Drottins beinist gegn Hadrak-landi og það kemur niður í Damaskus, — því að Drottinn hefir gætur á mönnunum og á öllum ættkvíslum Ísraels.
Sömuleiðis í Hamat, sem þar liggur hjá, í Týrus og Zídon; því að þær eru vitrar mjög.
Týrus reisti sér vígi og hrúgaði saman silfri eins og mold og skíragulli eins og saur á strætum.
Sjá, Drottinn skal gjöra hana að öreiga og steypa varnarvirki hennar í sjóinn, og sjálf mun hún eydd verða af eldi.
Askalon skal sjá það og hræðast, og Gasa engjast sundur og saman; sömuleiðis Ekron, því að von hennar er orðin til skammar. Konungurinn mun hverfa frá Gasa og Askalon mun verða óbygð.
Og skríll mun búa í Asdód, og eg gjöri enda á ofdrambi Filista;
og eg tek blóðið burt úr munni þeirra og viðurstygðirnar undan tönnum þeirra. Þá verða þeir og leifðir Guði vorum; þeir munu verða eins og ætthöfðingjar í Júda og Ekronmenn eins og Jebúsítar.
Eg sezt kring um hús mitt sem varðlið gegn þeim, sem um fara og aftur snúa. Enginn kúgari skal framar vaða yfir þá; því að nú hefi eg séð með eigin augum.
Fagna þú mjög, dóttirin Zíon, lát gleðilátum, dóttirin Jerúsalem! Sjá, konungur þinn kemur til þín; réttlátur er hann og sigursæll; lítillátur og ríður asna, ungum ösnufola.
Hann útrýmir hervögnum úr Efraím og hestum úr Jerúsalem. Öllum herbogum mun og útrýmt verða, og hann mun veita þjóðunum frið með úrskurðum sínum. Veldi hans mun ná frá hafi til hafs og frá Fljótinu til endimarka jarðarinnar.
Og vegna blóðs sáttmála þíns læt eg og bandingja þína lausa úr hinni vatnslausu gryfju.
Snúið aftur til hins trausta vígisins, þér bandingjar, sem væntið lausnar. Einnig í dag er gjört heyrinkunnugt: Eg endurgeld þér tvöfalt.
Því að eg hefi bent Júda eins og boga, fylt Efraím eins og örvamæli, og eg vek sonu þína, Zíon, í móti sonum Javans og gjöri þig eins og sverð í hendi kappa.
Drottinn mun birtast uppi yfir þeim og örvar hans út fara sem eldingar. Drottinn Guð mun þeyta lúðurinn og ganga fram í sunnanstormunum.
Drottinn hersveitanna mun halda hlífiskildi yfir þeim; og þeir munu sigra þá og fótum troða þá eins og slöngusteina. Og þeir munu drekka blóð þeirra eins og vín og verða fullir eins og fórnarskálar, dreyrstoknir sem altarishorn.
Drottinn, Guð þeirra, mun veita þeim sigur á þeim degi sem hjörð síns lýðs; því að þeir eru gimsteinar í höfuðdjásni, sem gnæfa glitrandi á landi sínu.
Já, hversu mikil eru gæði þess og hversu dýrleg fegurð þess! Korn lætur æskumenn upp renna og vínberjalögur meyjar.