Sakaríabók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 8

Og orð Drottins hersveitanna kom til mín, svo hljóðandi:

svo segir Drottinn hersveitanna: Eg er gagntekinn af vandlætisfullri elsku til Zíonar og er upptendraður af mikilli reiði hennar vegna.

Svo segir Drottinn: Eg er á afturleið til Zíonar og mun taka mér bólfestu í Jerúsalem miðri; og Jerúsalem mun nefnd verða borgin trúfasta og fjall Drottins hersveitanna fjallið helga.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Enn munu gamlir menn og gamlar konur sitja á torgum Jerúsalem og hvert þeirra hafa staf í hendi sér fyrir elli sakir.

Og torg borgarinnar munu full vera af drengjum og stúlkum, sem leika sér þar á torgunum.

svo segir Drottinn hersveitanna: Þótt það sé furðuverk í augum þeirra, sem eftir verða af þessum lýð á þeim dögum, — hvort mun það og vera furðuverk í mínum augum? segir Drottinn hersveitanna.

svo segir Drottinn hersveitanna: Sjá, eg mun frelsa lýð minn úr landi sólarupprásarinnar og úr landi sólsetursins,

og eg mun flytja þá heim og þeir skulu búa í Jerúsalem miðri, og þeir skulu vera minn lýður og eg skal vera þeirra Guð í trúfesti og réttlæti.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Verið hughraustir, þér sem á þessum dögum heyrið þessi orð af munni spámannanna, sem uppi voru þá er undirstöðusteinninn var lagður, til þess að endurreisa hús Drottins hersveitanna, musterið.

Því að fyrir þann tíma varð enginn arður af erfiði mannanna og enginn arður af vinnu skepnanna; og enginn var óhultur fyrir óvinum, hvort heldur hann gekk út eða kom heim; og eg hleypti öllum mönnum upp, hverjum á móti öðrum.

En nú stend eg öðruvísi gagnvart leifum þessa lýðs en í fyrri daga, segir Drottinn hersveitanna;

því að sáðkorn þeirra verða ósködduð. Víntréð ber sinn ávöxt og jörðin ber sinn gróða; himininn veitir dögg sína og eg læt leifar þessa lýðs taka alt þetta til eignar.

Og eins og þér, Júda hús og Ísraels hús, hafið verið hafðir að formæling meðal þjóðanna, eins vil eg nú svo hjálpa yður, að þér verðið hafðir að blessunaróskum. Óttist ekki, verið hughraustir.

Því að svo segir Drottinn hersveitanna: Eins og eg ásetti mér að gjöra yður ilt, þá er feður yðar reittu mig til reiði, segir Drottinn hersveitanna, og lét mig ekki iðra þess,

eins hefi eg nú aftur ásett mér á þessum dögum að gjöra vel við Jerúsalem og Júda hús. Óttist ekki.

Þetta er það, sem yður ber að gjöra: talið sannleika hver við annan og dæmið ráðvandlega og eftir óskertum rétti í hliðum yðar,

Enginn yðar hugsi öðrum ilt í hjarta sínu og hafið ekki mætur á lyga-svardögum. Því að alt slíkt hata eg, segir Drottinn.

Og orð Drottins hersveitanna kom til mín, svo hljóðandi:

Svo segir Drottinn hersveitanna: Fastan í hinum fjórða mánuði, fastan í hinum fimta mánuði, fastan í hinum sjöunda mánuði og fastan í hinum tíunda mánuði mun verða Júda húsi til fagnaðar og gleði og að unaðslegum hátíðardögum; en elskið sannleik og frið.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Enn munu koma heilar þjóðir og íbúar margra borga.

íbúar einnar borgar munu fara til annarrar og segja: Vér skulum fara til þess að blíðka Drottin og til þess að leita Drottins hersveitanna! Eg fer líka!

Og þannig munu fjölmennir þjóðflokkar og voldugar þjóðir koma til þess að leita Drottins hersveitanna í Jerúsalem og til þess að blíðka Drottin.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Á þeim dögum munu tíu menn af þjóðum ýmissa tungna taka í kyrtilskaut eins Júða og segja: Vér viljum fara með yður; því að vér höfum heyrt, að Guð sé með yður.