Sakaríabók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 7

Á fjórða ríkisári Daríusar konungs kom orð Drottins til Sakaría; • á fjórða degi hins níunda mánaðar, í kislevmánuði,

sendi skyldulið Elsarezers og Regem-Melek og menn hans, til þess að blíðka Drottin,

með svolátandi fyrirspurn til prestanna, sem eru við hús Drottins hersveitanna, og til spámannanna: Á eg að gráta og fasta í fimta mánuðinum, eins og eg hefi gjört nú í mörg undanfarin ár?

Þá kom orð Drottins hersveitanna til mín, svo hljóðandi:

Tala þú til alls landslýðsins og til prestanna á þessa leið: Þar sem þér hafið fastað og kveinað í fimta og sjöunda mánuðinum nú í sjötíu ár, hvort var það þá mín vegna að þér föstuðuð?

Og Þegar þér etið og þegar þér drekkið, eruð það þá ekki þér, sem etið, og eruð það ekki þér, sem drekkið?

Eru þetta ekki þau orð, er Drottinn lét kunngjöra fyrir munn hinna fyrri spámanna, þá er Jerúsalem var bygð og naut friðar, ásamt borgunum umhverfis hana, og þá er suðurlandið og sléttlendið voru bygð?

Þá kom orð Drottins til Sakaría, svo hljóðandi:

Svo segir Drottinn hersveitanna: »Dæmið rétta dóma og auðsýnið hver öðrum kærleika og miskunnsemi.

Veitið ekki ágang ekkjum og munaðarleysingjum, útlendingum né fátækum mönnum, og enginn yðar hugsi öðrum út í hjarta sínu«.

En þeir vildu ekki gefa því gaum og þverskölluðust; þeir gjörðu eyru sín dauf, til þess að þeir skyldu ekki heyra,

og þeir gjörðu hjörtu sín að demanti, til þess að þeir skyklu ekki heyra fræðsluna og orðin, sem Drottinn hersveitanna sendi fyrir anda sinn, fyrir munn hinna fyrri spámanna, og það kom mikil reiði frá Drottni hersveitanna.

Og eins og hann kallaði, en þeir heyrðu ekki, svo skulu þeir nú — sagði Drottinn hersveitanna — kalla, en eg ekki heyra.

Og eg feyki þeim burt meðal allra þjóða, er þeir eigi hafa þekt, og landið skal verða að auðn, þá er þeir eru burt farnir, svo að enginn fer þar um á leið fram eða aftur. Þannig gjörðu þeir unaðslegt land að auðn.