Sakaríabók 6Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 6

Eg hóf aftur upp augu mín og sá, hvar fjórir vagnar komu út á milli tveggja fjalla, en fjöllin voru eirfjöll.

Fyrir fyrsta vagninum voru rauðir hestar, fyrir öðrum vagninum svartir hestar;

fyrir þriðja vagninum voru hvítir hestar og fyrir fjórða vagninum rauðskjóttir hestar.

Þá tók eg til máls og sagði við engilinn, er við mig talaði: Hvað merkir þetta, herra minn?

Engillinn svaraði og sagði við mig: Þetta eru þeir fjórir vindar himinsins; þeir hafa gengið fyrir Drottin gjörvallrar jarðarinnar og eru nú að fara af stað.

Vagninn með svörtu hestunum fyrir var að fara til landsins norður frá og hinir hvítu fóru á eftir þeim; en hinir skjóttu fóru til landsins suður frá.

Og hinir rauðu fóru út; og með því að þeir æsktu að fara, til þess að fara um jörðina, sagði hann: Farið! Farið um jörðina! Og þeir fóru um jörðina.

Þá kallaði hann á mig og sagði við mig: Sjá, þeir sem fara til landsins norður frá, svala reiði minni við landið norður frá.

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Tak þú við gjöfum hinna herleiddu af hendi Heldaí, Tobía og Jedaja, og far þú sjálfur þann sama dag og gakk þú inn í hús Jósia Zefaníasonar, en þangað eru þeir komnir frá Babel.

Þar skalt þú taka silfur og gull og búa til kórónur og setja á höfuð Serúbabels og á höfuð Jósúa Józadakssonar æðsta prests.

Og þú skalt mæla þannig til þeirra: Svo segir Drottinn hersveitanna: Sjá, maður, sem heitir Kristur — af hans rótum mun spretta, og hann mun byggja musteri Drottins.

Hann mun byggja musteri Drottins og hann mun tign hljóta, svo að hann mun sitja og drotna í hásæti sínu, og prestur mun vera honum til hægri handar og friðarþel mun vera milli þeirra beggja.

En kórónurnar skulu vera þeim Helem, Tobía, Jedaja og Hen Zefaníasyni til minningar í musteri Drottins.

Og þeir, sem búa í fjarlægð, munu koma til að hyggja musteri Drottins, og þá munuð þér viðurkenna, að Drottinn hersveitanna hefir sent mig til yðar, og ef þér hlýðið röddu Drottins, Guðs yðar, þá mun........