Gamla testamentiðSpámennirnir
Biðjið Drottinn um regn. Hann veitir vorregn og haustregn á réttum tíma; helliskúrir og steypiregn gefur hann þeim, hverri jurt vallarins.
Því að húsgoðin veittu fánýt svör og spásagnamennirnir sáu falssýnir. Þeir kunngjöra aðeins hégómlega drauma og veita einkisverða huggun. Fyrir því héldu þeir áfram eins og hjörð, eru nú nauðulega staddir, af því að enginn er hirðirinn.
Gegn hirðunum er reiði mín upptendruð og forustusauðanna skal eg vitja. Því að Drottinn hersveitanna hefir litið til hjarðar sinnar, Júda húss, og gjört þá að skrauthesti sínum í stríðinu.
Frá þeim kemur hornsteinninn, frá þeim kemur tjaldhællinn, frá þeim kemur herboginn, frá þeim koma allir saman hershöfðingjarnir.
Þeir munu í stríðinu verða eins og hetjur, sem troða niður saurinn á strætunum, og þeir munu berjast vasklega, því að Drottinn er með þeim, svo að þeir verða til skammar, sem hestunum ríða.
Eg gjöri Júda hús sterkt og Jósefs húsi veiti eg hjálp. Eg leiði þá aftur heim, því að eg aumkast yfir þá, og þeir skulu vera eins og eg hefði aldrei útskúfað þeim. Því að eg er Drottinn, Guð þeirra, og eg vil bænheyra þá.
Þá munu Efraímsmenn verða eins og hetjur og hjarta þeirra gleðjast eins og af víni. Börn þeirra munu sjá það og gleðjast, hjarta þeirra skal fagna yfir Drottni.
Eg vil blístra á þá og safna þeim saman, því að eg hefi leyst þá, og þeir skulu verða eins fjölmennir og þeir forðum voru.
Eg sái þeim út meðal þjóðanna; en í fjarlægum löndum munu þeir minnast mín og uppala þar börn sín og snúa síðan heim.
Eg mun leiða þá heim aftur frá Egiptalandi og safna þeim saman frá Assýríu. Eg leiði þá inn í Gíleaðland og inn á Líbanon, og skorta mun landrými fyrir þá.
Þeir fara yfir Egiptalands-haf, og hann lýstur hið bárótta haf og allir álar Nílfljótsins þorna. Hroki Assúrs skal niður steypast og veldissprotinn víkja frá Egiptalandi.
Eg vil gjöra þá sterka í Drottni og af hans nafni skulu þeir hrósa sér, segir Drottinn.